Hópsýkingin á Landakoti: Allir sjúklingar á einni deildinni veiktust af Covid-19

Aðbún­aður og mönnun voru ófull­nægj­andi á Landa­koti. Loft­ræst­ing er engin, hús­næðið þröngt og starfs­menn og tæki gengu á milli deilda. Kæfisvefn­vél, sem eykur dropa­fram­leiðslu og dreifir úða­ögnum frá önd­un­ar­færum, var notuð á smit­aðan ein­stak­ling.

Hópsýkingin á Landakoti: Allir sjúklingar á einni deildinni veiktust af Covid-19

Samkvæmt nið­ur­stöðum í skýrslu Land­spít­al­ans um hóp­sýk­ing­una á Landa­koti eru ástæður hennar sagðar marg­þættar. Talið er að nokkur smit hafi borist þangað inn á skömmum tíma. Í mati skýrslu­höf­undar, Lovísu Bjarkar Ólafs­dóttur sér­fræði­læknis í smit­sjúk­dómum og sýk­ing­ar­vörnum, kemur fram að ástand hús­næðis, loft­skipta og aðbún­aðar á Landa­koti sé ófull­nægj­andi og lík­legt sé að þessir þættir séu megin orsök þess hversu mikil dreif­ing varð á smiti innan stofn­un­ar­innar. Þá segir í nið­ur­stöðum Lovísu Bjarkar að mönnun á Landkoti hafi verið ónóg og æski­legt hefði verið að bæta mönnun þannig að hægt hefði verið að tryggja hólfa­skipt­ingu starfs­manna milli deilda á far­sótt­ar­tímum.

Kæfisvefnvél notuð á smitaðan einstakling 

Talið er að Covid-19 smit á Landa­koti hafi borist þangað inn á skömmum tíma, lík­lega eftir 15. októ­ber, og með nokkrum ein­stak­lingum. Þá er einnig talið hugs­an­legt að sum smit milli starfs­manna hafi átt uptök sín utan vinnu­staðar, í sam­skiptum við fjöl­skyldur þeirra og vini.  

Á tíma­bil­inu 22.-29. októ­ber greindust 98 Covid-19 til­felli tengd hóp­sýk­ing­unni á Landa­koti, 52 starfs­menn og 46 sjúk­lingar. Um mjög hátt smit­hlut­fall var að ræða og er það rakið til þess að gríð­ar­lega mikil dreif­ing hafi verið á smitefni innan Landa­kots. Á einni legu­deild, sem nefnd er R smit­uð­ust þannig allir sjúk­lingar og 52 pró­sent starfs­manna og á deild sem nefnd er Q 93 pró­sent sjúk­linga og 46 pró­sent starfs­manna.

Kæfisvefns­véla­með­ferð var beitt hjá ein­kenna­lausum ein­stak­lingi sem lá inni á deild Q, sem greind­ist síðar COVID-19 smit­aður. Kæfisvefns­vél­inni var beitt alla daga frá 12.-21. októ­ber inni á deild Q. Þekkt er að kæfisvefns­vél eykur dropa­fram­leiðslu ein­stak­linga og að vélin dreifi úða­ögnum frá önd­un­ar­færum sem geta svifið í loft­inu í meira en klukku­stund. Á Landa­koti er engin loft­ræst­ing og dregur Lovísa Björk þá ályktun að sú stað­reynd hafi magnað upp smit­dreif­ingu og aukið sýk­ing­ar­hættu.

Minna en metri á milli rúma

Þá eru lang flestar sjúkra­stofur á Landa­koti fjöl­býli, þar sem eru fá kló­sett fyrir sjúk­linga. Í versta til­fell­inu eru aðeins þrjú kló­sett á deild þar sem eru níu tví­býli og tvö ein­býli og 19 sjúk­lingar voru inniliggj­andi.

Sjúk­lingar hafa ekki aðgang að einkasal­erni eða einkast­urtu. Á deild R, þar sem allir inniliggj­andi sjúk­lingar smit­uð­ust, eru 3 kló­sett en inniliggj­andi sjúk­lingar voru 14. Á deild Q voru 15 sjúk­lingar inniliggj­andi en kló­sett þar eru 4. 

Rúma­nýt­ing á Landa­koti var 100 pró­sent í sept­em­ber en almennt er talið æski­legt að rúma­nýt­ing sé aðeins 85 pró­sent. Eftir fyrri bylgj­una í vor var hins vegar ákveðið að breyta leg­u­rýmum á Landa­koti þannig að þrí­býlum var breytt í tví­býli og ein­býlum fjölgað. 

Húsnæðið er svo þröngt að stundum var minna en metri á milli rúma sjúk­linga, stundum ekki nema 0,6 metri. Ekki var skjól­tjald milli allra rúma í fjöl­býlum og ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um hvenær skjól­tjöld voru sett upp, eða hvenær þau voru þrifin. 

Innan hverrar deildar eru borð­stofur þar sem flestir sjúk­lingar á hverri deild borða saman. Fjöl­margir snertifletir eru fyrir sjúk­linga aðrir, dag­stofur, tækja­salur og rými fyrir hópa­með­ferðir. Í hóp­með­ferðum voru sjúk­lingar sem þær sóttu saman ekki með and­lits­grímur, en starfs­menn báru slíkar. Leiðir Lovísa Björk líkum að því að smit­dreif­ing hafi orðið milli sjúk­linga í slíkum aðstæðum, jafn­vel þó að tveggja metra fjar­lægð hafi verið virt, sökum lélegrar loft­ræst­ingar á Landa­koti.

Starfsmenn sátu þröngt saman 

Enn fremur eru aðstöðu starfs­manna veru­lega ábóta­vant, til að mynda eru bún­ings­klefar þröngir og aðeins eru þrjár sturtur fyrir alla starfs­menn. Kaffi­stofur eru litlar, fjórar af fimm um eða undir 12 fer­metrar að stærð, og og erfitt að halda tveggja metra fjar­lægð­ar­mörkum í mat­máls­tímum. Allt þetta er til þess fallið að auka á dreif­ingu smits.

Í úttekt á aðstöðu starfs­fólks 14. októ­ber síð­ast­lið­inn kom fram að sökum þess að mat­salur er lok­aður vegna end­ur­bóta mat­ast starfs­fólk inni á umræddum, þröngum kaffi­stofum. Á einni deild sátu til að mynda fjórir starfs­menn saman við lítið borð að mat­ast, og því án gríma og fjar­lægð­ar­mörk undir tveimur metrum. Ekki var kassi með grímum til­tækur á þremur kaffi­stofum. Þá voru stólar á tveimur kaffi­stofum með áklæði sem ekki var hægt að þrífa. Ekki var aðgengi að sjúkra­hús­spritti eða sótt­hreinsi­klútum fyrir starfs­menn að grípa til.

Þá er ekki algjör hólfa­skipt­ing milli starfs­manna deilda, vegna mann­eklu. Þá er tals­vert um sam­eig­in­legan búnað sem sækja þarf og flytja milli deilda og það hafa starfs­menn gert og þar með þurft að rjúfa hólfa­skipt­ingu.

Sjúklingar útskrifaðir af deild þar sem allir sýktust

Flest til­felli veirunnar sem hafa greinst eru af sama afbrigði sem er mjög algengt á Íslandi. Lík­leg­ast er að þeir sjúk­lingar sem fengu upp­hafsein­kenni í byrjun, frá 21. októ­ber, hafi verið útsettir fyrir smiti frá 16. til 18. októ­ber. Á sama tíma var nýgengi smita í sam­fé­lag­inu mjög hátt.

Líkt og fyrr segir smit­uð­ust allir sjúk­lingar á deild R. Sjúk­lingar af þeirri deild voru útskrif­aðir og sendir inn á aðrar stofn­anir dag­ana 16. og 20. októ­ber. Allir hinna útskrif­uðu greindust síðar með Covid-19.  Tölu­verður fjöldi var með væg eða óljós ein­kenni sem gætu sam­rýmst Covid-19 fyrir grein­ingu. Talið er að útsetn­ing smita hafi haf­ist fyrir 16. októ­ber, jafn­vel frá og með 5. októ­ber. 

Auk þess voru sjúk­lingar útskrif­aðir af deild U þann 20. októ­ber og af deild T þann 22. októ­ber. Á deild U var hlut­fall smit­aðra 26,3 pró­sent á tíma­bil­inu 12. októ­ber til 22. októ­ber, þegar enn var verið að útskrifa sjúk­linga af deild­inni. Á deild T var hlut­fall smit­aðra mun hærra eða 87,5 pró­sent dag­ana 12. októ­ber til 22. októ­ber.

Samkvæmt smitrakn­ingu fund­ust nokkur til­felli þar sem fólk hefur getað verið útsett fyrir smiti utan Landa­kots á þessu tíma­bili og hefðu getað borið veiruna inn á Landakot. Þá eru nokkur til­felli þar sem starfs­fólk teng­ist smit­uðum fjöl­skyldu- eða vina­böndum, sem hefðu þá getað orðið fyrir smiti utan Landa­kots. 

Bein lýsing af blaðamannafundinum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvað gerðist á Landakoti?

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár