Beint: Landakotsskýrslan kynnt - Ekki hægt að koma í veg fyrir þetta, segir Páll Matthíason

„Það var ekki hægt að koma í veg fyrir að smit myndu ber­ast inn, því miður,“ sagði Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­ala, um hóp­sýk­ingu Covid-19 á Landa­koti. Talið er að fleiri en ein mann­eskja hafi borið inn smit. Gríð­ar­leg dreif­ing veirunnar skýrist af hús­næð­inu og skorti á mann­afla.

Samkvæmt nið­ur­stöðum í skýrslu Land­spít­al­ans um hóp­sýk­ing­una á Landa­koti eru ástæður hennar sagðar marg­þættar. Talið er að nokkur smit hafi borist þangað inn á skömmum tíma. Í mati skýrslu­höf­undar, Lovísu Bjarkar Ólafs­dóttur sér­fræði­læknis í smit­sjúk­dómum og sýk­ing­ar­vörnum, kemur fram að ástand hús­næðis, loft­skipta og aðbún­aðar á Landa­koti sé ófull­nægj­andi og lík­legt sé að þessir þættir séu megin orsök þess hversu mikil dreif­ing varð á smiti innan stofn­un­ar­innar. Þá segir í nið­ur­stöðum Lovísu Bjarkar að mönnun á Landkoti hafi verið ónóg og æski­legt hefði verið að bæta mönnun þannig að hægt hefði verið að tryggja hólfa­skipt­ingu starfs­manna milli deilda á far­sótt­ar­tímum.

Hér að ofan má fylgj­ast með blaða­manna­fundi Land­spít­al­ans þar sem nið­ur­stöður skýrsl­unnar verða kynntar.

Í loka­orðum sínum sagði Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, að reynt verði að fyr­ir­byggja að þetta end­ur­taki sig, en vís­aði í þá leið að halda smitum niðri í sam­fé­lag­inu.

„Við hörmum enn og aftur það að þetta hafi komið upp og erum að gera okkar allra besta til að læra af reynsl­unni og reyna að fyr­ir­byggja, ef hægt er, að svona ger­ist aftur. Ég ítreka að við telum ekki ásætt­an­legt að fólk lát­ist af völdum Covid-19-veirunnar, þótt það ger­ist því miður, og við gerum okkar allra besta til að hindra að slíkt ger­ist. Og ég vil enn og ný ítreka að það er engin keðja sterk­ari en veikasti hlekk­ur­inn, þannig að við erum öll saman í þessu, allt sam­fé­lagið, enda kom það skýrt fram í þess­ari athugun, hversu mik­il­vægt það er að halda smiti niðri í sam­fé­lag­inu til þess að vernda okkar veik­ustu ein­stak­linga.“


Texta­lýs­ingin upp­fær­ist sjálf­krafa á 30 sek­úndna fresti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvað gerðist á Landakoti?

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár