Önnur úrslit kvöldsins: Afglæpavæðing vímuefna, lágmarkslaun og Uber-ökumenn

Kjós­endur í ríkjum Banda­ríkj­anna tóku ýmsar stefnu­mark­andi ákvarð­anir í gær sem binda hendur kjör­inna full­trúa.

Önnur úrslit kvöldsins: Afglæpavæðing vímuefna, lágmarkslaun og Uber-ökumenn
Á kjör­stað Kosið var um fleira en for­seta í Banda­ríkj­unum í gær. Mynd: Shutterstock

Kosið var um fjölda til­lagna í ríkjum Banda­ríkj­anna í nótt til við­bótar við kosn­ingar um for­seta, þing­menn og aðrar opin­berar stöður.

Í rík­inu Oregon var sam­þykkt til­laga um að afglæpa­væða öll vímu­efni, þar á meðal smærri skammta af heróíni. Stuðn­ings­menn til­lög­unnar telja að stefna Banda­ríkj­anna í „stríð­inu gegn eit­ur­lyfjum“ hafi fyllt fang­elsi lands­ins af fólki sem þurfi með­ferð frekar en refs­ingu og að stefn­unni hafi sér­stak­lega verið beint gegn svörtu fólki. Þá varð ríkið það fyrsta í Banda­ríkj­unum til að lög­leiða notkun ofskynj­un­ar­sveppa í lækn­inga­skyni og undir hand­leiðslu sér­fræð­inga.

Í Flórída, þar sem Donald Trump Banda­ríkja­for­seti fékk meiri­hluta atkvæða, völdu kjós­endur að hækka lág­marks­laun í skrefum upp í 15 dali á klukku­tíma. Breyt­ing­arnar taka gildi á sex árum. Lág­marks­laun munu hækka úr 8,56 dölum í 10 í sept­em­ber 2021, eða úr and­virði 1200 íslenskra króna í 1400. Þaðan hækka launin um einn dal á ári þar til þau ná 15 dölum haustið 2026, eða and­virði 2100 króna. Er Flórída átt­unda ríkið til að hækka launin í 15 dali, en á lands­vísu eru lág­marks­laun aðeins 7,5 dalir og hafa verið óbreytt frá 2009.

Í Kali­forníu, þar sem kjós­endur studdu Joe Biden, fram­bjóð­anda Demókrata, með yfir­burðum, er útlit fyrir að kjós­endur hafi sam­þykkt til­lögu sem skil­greinir bíl­stjóra svo­kall­aðra skutl­þjón­usta sem verk­taka, en ekki laun­þega. Nær breyt­ingin til starfs­manna fyr­ir­tækja eins og Uber, Lyft og Post­mates, sem þurfa ekki að greiða fyrir rétt­indi eins og veik­inda­daga og borga yfir lág­marks­launum. Lögðu fyr­ir­tækin and­virði 25 millj­arða íslenskra króna í kosn­inga­bar­átt­una, sem var sú dýrasta sinnar teg­undar, og höfðu erindi sem erf­iði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2020

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár