„Umhverfisfyrirtæki ársins“ dreifði plastdrasli um náttúruna

1.500 rúmmetrar af moltu sem fyr­ir­tækið Terra dreifði til upp­græðslu í Krýsuvík voru allir plast­meng­aðir. Plast og rusl mátti sjá vítt og breitt um svæðið. Samtök atvinnu­lífs­ins útnefndu Terra „umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins“ fyrr í mán­uð­inum. Arn­grímur Sverr­is­son, rekstr­ar­stjóri Terra, seg­ist taka málið mjög nærri sér.

„Umhverfisfyrirtæki ársins“ dreifði plastdrasli um náttúruna
Verð­launa­af­hend­ing 14. októ­ber síð­ast­lið­inn var Terra verð­launað af Samtökum atvinnu­lífs­ins sem „umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins“. Á mynd­inni eru: Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, Líf Lár­us­dóttir, mark­aðs­stjóri Terra, Gunnar Bragason, for­stjóri Terra, Jónína G. Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri þjón­ustu- og við­skipta­sviðs Terra, Freyr Eyj­ólfs­son, sam­skipta­stjóri Terra og Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA. Mynd: SA

Sorp­hirðu- og end­ur­vinnslu­fyr­ir­tækið Terra dreifði plasti og öðru rusli á svæði í Krýsuvík með dreif­ingu á moltu á svæð­inu í sumar. Um 1.500 rúmmetrum af moltu var dreift á svæðið og má gera ráð fyrir að allt efnið hafi verið plast­mengað. Ástæðan var þekk­ing­ar­leysi og klúður. Samtök atvinnu­lífs­ins útnefndu Terra umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins fyrr í þessum mán­uði.

Þeir verk­ferlar sem beitt var við moltu­gerð­ina reynd­ust algjör­lega ófull­nægj­andi. Á myndum af svæð­inu má sjá ýmiss konar plast­efni í miklu magni, bæði stórt og smátt. Sjá má heil plast­hnífa­pör, lyfja­um­búðir en einnig annað rusl eins og stál­hnífa­pör. Rekstr­ar­stjóri Terra seg­ist miður sín yfir mál­inu og taki það nærri sér. Umhverf­is­stjórn­un­ar­fræð­ingur segir svona ekki eiga að ger­ast.

Plast eins og hrá­viði um alltHvert sem litið er, á stóru svæði, lá plast á svæð­inu sem Terra dreifði molt­unni á.

Gumuðu sig af verkefninu

Í byrjun sum­ars var til­kynnt um að Terra hyggð­ist, í sam­starfi við Land­græðsl­una, vinna að upp­græðslu lands á Reykja­nesi í nágrenni Krýsu­víkur. Markmið verk­efn­is­ins var að stuðla að auk­inni notkun á moltu til land­bóta í stað þess að nota til þess til­bú­inn áburð. Dreifa átti um 1.500 rúmmetrum af moltu á svæðið sem allt í allt er um 50 hekt­arar og lítt gróið. Þá kom umhverf­is­ráðu­neytið að mál­inu einnig en ráðu­neytið setti fjár­muni í verk­efnið. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra fagn­aði verk­efn­inu og sagði mikil verð­mæti fel­ast í inn­lendri moltu.

„Þetta er stórt skref í að inn­leiða nýja hugsun með að nýta betur líf­rænan úrgang og moltu til að græða landið“

„Við hjá Terra erum stolt af þessu mik­il­væga sam­starfi. Þetta er stórt skref í að inn­leiða nýja hugsun með að nýta betur líf­rænan úrgang og moltu til að græða landið. Þetta er hringrás­ar­hag­kerfið í fram­kvæmd,“ sagði í frétt á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins.

Græða upp landið með moltuTerra birti þetta kynn­ing­ar­mynd­band 7. októ­ber síð­ast­lið­inn þar sem glað­beittir menn kynntu upp­græðslu­verk­efni fyr­ir­tæk­is­ins og Land­græðsl­unnar. Skömmu síðar kom í ljós að moltan var meira og minna plast­menguð.

Terra hefur gert mikið úr verk­efn­inu og birti meðal ann­ars kynn­ing­ar­mynd­bandið hér að ofan, þar sem verk­efnið var kynnt, 7. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Fyr­ir­tækið hlaut síðan umhverf­is­verð­laun atvinnu­lífs­ins, sem Samtök atvinnu­lífs­ins veita, 14. októ­ber, og var meðal ann­ars til­tekið að fyr­ir­tækið ræki jarð­gerð­ar­stöð til end­ur­nýt­ingar á líf­rænum efnum.

Lyfjaumbúðir og hnífapör í moltunni

Stundin birtir hér ljós­myndir af aðstæðum þar sem Terra dreifði moltu í Krýsuvík. Mynd­irnar voru teknar 11. októ­ber síð­ast­lið­inn. Þar má sjá stóra plast­hluti, lyfja­um­búðir og annað rusl sem dreift hafði verið með molt­unni.

Margir meng­un­ar­valdarEkki aðeins var um að ræða plast heldur einnig lyfja­um­búðir en þeim á að skila sér­stak­lega í apó­tek.

Á Facebook-síðu ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Grænnar leiðar, sem veitir ráð­gjöf í úrgangs­málum til fyr­ir­tækja, stofn­ana og sveit­ar­fé­laga, voru einnig birtar myndir af sorpi sem sjá mátti hist og her á svæð­inu, plasti, hnífa­pörum og öðru rusli. Þá vekur athygli að stoð­efni í molt­unni, nið­ur­rifið timbur, er óvenju gróf­gert. Í færslu Grænnar leiðar segir að mest hafi verið um litlar agnir sem sokknar væru í jarð­veg­inn en stærra efni fyki um svæðið.

Viðhorfið að molta sé eitthvað úrgangsgums

Stefán GíslasonSegir málið vera klúður.

Stefán Gíslason umhverf­is­stjórn­un­ar­fræð­ingur segir málið vera „klúður“. „Í almenni­legri moltu­gerð á að vera síun áður en ferlið hefst því það kemur alltaf eitt­hvað drasl með þó þetta sé sér­safn­aður líf­rænn úrgangur. Síðan á að vera sigtun þegar efnið kemur út úr ferl­inu. Mér finnst til dæmis mjög skrýtið að sjá á þessum myndum, þótt það geri nátt­úr­unni kannski ekk­ert til, stórar tré­flísar sem hafa verið nýttar sem stoð­efni. Þetta eiga menn að hreinsa út vegna þess að þetta nýt­ist í margar umferðir sem stoð­efni, það er engin mein­ing að þetta fari út með molt­unni. Það á að vera hægt að sigta mest af þessu úr í ferl­inu svo menn ættu ekki að þurfa að fara og ganga um svæði til að tína upp rusl eftir á. Þetta ætti ekki að ger­ast.“

„Þetta ætti ekki að ger­ast“

Stefán segir virð­ing­ar­leysi ríkj­andi gagn­vart moltu­gerð á Íslandi. „Dreifing moltu getur verið hin besta aðgerð til að vinna að land­bótum. Að ein­hverju leyti snýst þetta kannski um að Íslend­ingum hefur enn ekki auðn­ast að bera næga virð­ingu fyrir moltu sem fram­leiðslu­vöru. Það er enn þá þetta við­horf að þetta sé eitt­hvert gums sem hafi orðið til við jarð­gerð og það þurfi að losna við það. Menn horfa á ferlið sem úrgangs­með­höndlun í stað þess að horfa á það sem fram­leiðslu, það hefur ríkt ákveðið virð­ing­ar­leysi gagn­vart þessu efni.“

Vonlaust að hreinsa allt í burtu

Segir þekk­ing­ar­leysi ástæð­unaArn­grímur Sverr­is­son, rekstr­ar­stjóri Terra, seg­ist miður sín yfir því hversu hrapal­lega tókst til.

Arn­grímur Sverr­is­son, rekstr­ar­stjóri Terra, var með böggum hildar yfir mál­inu þegar Stundin hafði sam­band við hann. Raunin er að öll sú molta sem dreift var á svæð­inu í sumar, 1.500 rúmmetrar, hefur verið menguð af plasti án þess að starfs­menn Terra hafi gert sér grein fyrir því. Það ferli sem notað var við moltu­gerð­ina reynd­ist með öllu ófull­nægj­andi.

„Við hreins­uðum þetta eins mikið og við gátum áður en ferlið hófst og end­uðum svo með að sigta þetta, í gegnum möskva­stærð sem er 20 milli­metrar. Ég tók síðan prufur úr molt­unni. Ég sá að það var örlítið af litlum plast­ögnum í þessu, en það er því miður ekki hægt að kom­ast hjá því að eitt­hvað slíkt fylgi með. En eftir sigt­un­ina kom í ljós að moltan var svona kúlu­kennd, það voru ein­hverja kúlur í henni sem ég var að velta fyrir mér hvað væri. Ég veit það núna, það voru litlar plast­agnir sem höfðu rúll­ast upp og klesst saman og orðið það litlar að þær sluppu í gegnum möskvana. Svo þegar þær komu út og það rigndi ofan í þetta þá losn­aði um það og plastið breidd­ist út,“ segir Arn­grímur.

„Þetta eru mis­tök sem ger­ast, eða kannski ekki mis­tök heldur bara þekk­ing­ar­leysi“

Á myndum má sjá bæði minna plast en einnig stærri hluti eins og heil plast­hnífa­pör, lyfja­um­búðir og jafn­vel stór stál­hnífa­pör. Spurður hvernig slíkir hlutir hafi getað sloppið í gegnum síun segir Arn­grímur að það sé vænt­an­lega vegna þess miklum þrýst­ingi sé beitt við vinnsl­una. „Stærri stykki hafa farið í gegn vegna þess að það er mik­ill þrýst­ingur sem beitt er til að koma efn­inu í gegnum síuna. Það virð­ist bara vera þannig með þessa möskva sem við vorum að nota að efnið kom­ist í gegnum þá. Það sem verra er að við sáum þetta ekki, þegar við erum að gera prufur eða dreifa efn­inu. Ég var að fylgj­ast með dreif­ing­unni í sumar og ég sá þetta ekki. Svo þegar búið er að leggja molt­una út og hún fer að setj­ast, það rignir ofan í hana, þá kemur þetta í ljós.“

Á leið ofan í jörð­inaMikið magn plasts er þegar horfið ofan í svörð­inn en fólk á vegum Terra fór á Krýsu­vík­ur­svæðið á dög­unum og hreins­aði það sem til sást.

Terra hefur sent fólk á vett­vang til að hreinsa svæðið, það rusl sem sést á því. Arn­grímur segir hins vegar að því miður sé eitt­hvað af plast­inu þegar horfið ofan í jarð­veg­inn og eitt­hvað hafi fokið burt. „Þetta er mjög leið­in­legt og þetta viljum við ekki. Þetta eru mis­tök sem ger­ast, eða kannski ekki mis­tök heldur bara þekk­ing­ar­leysi. Þetta er klúður, við gerðum okkur ekki grein fyrir því að þetta væri svona. Þetta kom mér alveg í opna skjöldu.“

Verður að finna lausn

Eftir að málið kom upp og Terra varð það ljóst, nú í vik­unni, hófst strax vinna við að kanna hvaða leiðir sé hægt að fara til að koma í veg fyrir að slíkt hið sama end­ur­taki sig. Moltu­gerð tekur tíma og verk­efn­inu í Krýsuvík er lokið þar eð ekki er til meira efni í það. Arn­grímur segir að hann sé ekki viss um að fram­hald verði á verk­efn­inu en ljóst sé að það verði að finna lausn á vanda­mál­inu.

„Ég tek þetta mjög nærri mér“

„Við þurfum senni­lega að fara með sigtið niður í 7 milli­metra og gera síðan próf­anir á þessu, með útskolun, til að sjá hvort það sé enn plast í efn­inu. Ef það er plast er ekki hægt að nota efnið. Hugs­an­lega væri hægt að þurrka efnið enn þá meira þá og nota ryksugur til að ná plast­inu úr. Það sem kemur mér á óvart í þessu, því ég tek þetta mjög nærri mér, er að það er búið að dreifa moltu til almenn­ings, ein­hverjum hund­ruðum rúmmetra, og það hefur eng­inn minnst á þetta eða gert athuga­semd. Við vissum að það gæti verið eitt­hvert örlítið plast í þessu, það er plast út um allt í kringum okkur og fólk hendir plasti út um allt, en hluti af þessu er þó bio-plast sem á eftir að brotna niður.“

En hvað verður þá um líf­ræna úrgang­inn ef ekki er hægt að búa til úr honum moltu og dreifa henni? Arn­grímur segir ein­fald­lega að það verði að takast. „Við verðum bara að reikna með að við náum tökum á þessu, það er verið að gera þetta úti í heimi. Við ætlum að fjár­festa í pressu sem á að geta náð plast­inu úr áður en ferlið hefst. Það verður bara að takast. Það versta er hvað fólk gengur því miður illa um þetta, það gerir okkur mjög erfitt fyrir.“

Alls konar plastAlls konar plast virð­ist hafa verið í molt­unni, eins og þetta net utan af lauk.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár