Á síðustu árum höfum við séð myndbönd og heyrt af svörtu fólki sem hefur látist af hendi lögreglu í Bandaríkjunum. Ekkert þessara myndbanda hefur líklega haft jafn mikil áhrif og myndbandið þar sem George Floyd grátbiður lögreglu um að leyfa sér að anda. Nýlega hefur mikið verið fjallað um Breonna Taylor sem var skotin af lögreglu á heimili sínu í Louisville Kentucky í mars. Taylor var 26 ára þegar hún var skotin. Ekki er vitað til þess að Taylor hafi nokkurn tímann brotið af sér. Hún hafði átt í ástarsambandi við mann sem var undir eftirliti lögreglu fyrir fíkniefnabrot. Lögreglan Louisville grunaði kærasta Taylor um að nota íbúð hennar til að taka á móti fíkniefnum og hafði því fengið heimild til að leita í íbúðinni.
Það sem veldur mestri reiði meðal mótmælenda í Louisville er að óeinkennisklæddir lögreglumenn skyldu brjóta sér leið inn í íbúðina og að einn þeirra hafi skotið án þess að sjá hvað eða hvern hann var að skjóta. Sá lögregluþjónn hefur verið leystur frá störfum, aðrir ekki. Fyrrverandi kærasti Taylor hefur greint frá því að þau hafi ekki vitað að mennirnir sem brutu niður hurð á heimili Taylor hafi verið lögregluþjónar, enda hafi ekkert gefið það til kynna. Dauði Floyd og Taylor eru tvö dæmi af mörgum sem hafa vakið athygli á síðustu árum.
BLM hreyfingin
Allskonar fólk um allan heim tekur þátt í hreyfingunni Black Lives Matter (BLM). Þetta fólk á það sameiginlegt að vilja berjast gegn kynþáttamismunun. Sérstaklega gegn mismunun og harðræði sem svart fólk verður fyrir af hendi lögreglunnar. Að öðru leyti á fólkið sem tekur þátt í hreyfingunni ekki endilega mikið sameiginlegt. Fólk tekur þátt í hreyfingunni með því að tísta mótmælum undir kassamerkinu #BLM á Twitter, mótmæla úti á götu og einhverjir með því að taka þátt í einum af nokkrum samtökum sem kenna sig við BLM (t.d. Black Lives Matter Foundation, Inc). Þau sem starfa með BLM samtökum er aðeins lítið brot af þeim fjölda sem tekur þátt í hreyfingunni. Þessi litli hluti er fjölbreyttur hópur fólks.
Ein leið sem hefur verið farin til að draga úr réttmæti BLM hreyfingarinnar er að benda á að aðilar sem hafa sagt eða gert eitthvað í nafni BLM hafi gerst sekir um afbrot og þar með sé ekki mark takandi á því sem mótmælt er. Það er vel þekkt aðferð að ráðast á persónur frekar en raunveruleg málefni. Yfirleitt notar fólk þessa aðferð vegna þess að það er auðveldara heldur en að ræða málefni, sem geta verið flókin og margþætt.
Eru kröfur BLM réttmætar?
Ótal rannsóknir hafa verið gerðar þar sem markmiðið er að skoða hvort svartir Bandaríkjamenn séu í raun líklegri en hvítir til að vera stöðvaðir, handteknir, beittir harðræði, skotnir eða drepnir af lögreglu. Þessar rannsóknir hafa verið gerðar á ólíkum svæðum og á mismunandi tímabilum. Mismunandi aðferðafræði hefur leitt til þess að niðurstöðurnar eru ekki á einn veg. Þessar rannsóknir taka allar tillit til mismunandi tíðni afbrota á milli hópa. Í þessum rannsóknum er því verið að svara því hvort svartur einstaklingur sé t.d. líklegri til að vera skotin af lögreglu en hvítur, að teknu tilliti til hlutfallslegs fjölda afbrota sem svartir fremja. Þegar niðurstöður þessara rannsókna eru dregnar saman gefa þær sterka vísbendingu um að það þurfi almennt minna til að svartir einstaklingar séu handteknir en hvítir, og að þeir séu frekar beittir ýmiss konar harðræði. Það er aðeins meira misræmi í niðurstöðum rannsókna á skotárásum lögreglu. En þær sem ná yfir langt tímabil og stóran hluta af Bandaríkjanna sýna að svartir eru líklegri en hvítir til að vera skotnir af lögreglu. Svarið við spurningunni um hvort mótmæli BLM eigi rétt á sér er því já.
Ástæður þess að svörtum Bandaríkjamönnum er mismunað af hendi lögreglu eru margþættar. Ein tengist staðalmyndum af svörtu fólki sem hættulegra en annað fólk (sbr. kynþáttafordómar). Margir hafa svipaðar staðalmyndir um fátækt fólk og fólk sem býr í hverfum þar sem margir íbúar eru svartir. Það hefur einnig verið bent á að þjálfun lögreglu sé mjög ábótavant. Víða í Bandaríkjunum þarf fólk að fara á 3 mánaða námskeið áður en það fær réttindi til að starfa sem lögregluþjónar. Til samanburðar þurfa nú lögregluþjónar á Íslandi að ljúka 2 ára háskólanám þar sem mikil áhersla er lögð á starfsþjálfun og bóklega áfanga í lögfræði, sálfræði og félags- og afbrotafræði.
Svartir Bandaríkjamenn og hærri tíðni afbrota
Fólk hefur gert lítið úr réttmæti BLM hreyfingarinnar með því að vísa í hærri tíðni afbrota svartra Bandaríkjamanna. Fólk nefnir mismunandi tölur sem margar eru byggðar á rangtúlkun á afbrotatölfræði. Til dæmis hefur fólk notað hlutfall ofbeldisbrota svartra í ákveðinni borg í samhengi við hlutfall þeirra í Bandaríkjunum almennt. En hlutfall svartra íbúa er mun hærra í borgum eins og New York en í Bandaríkjunum í heild.
Einnig hafa verið notaðar tölur yfir grunaða, handtekna eða fjölda í fangelsum til að benda á hlutfall brota sem svartir fremja. Engar þessara talna gefa okkur raunverulegan fjölda afbrota sem eru framdir af ólíkum hópum fólks. Sem dæmi er nokkuð hátt hlutfall morðmála í Bandaríkjunum óleyst og því ekki nokkur leið að vita hvernig gerandi lítur út.
„Stór hluti af þessum mun liggur í því að ungir svartir menn eru líklegri en hvítir til að búa í hverfum þar sem fátækt er mikil og þar sem of margt ungt fólk deyr af völdum gengjastríða“
Þegar bestu gögn um tíðni afbrota eru tekin saman, t.d. opinber gögn og stórar kannanir sem spyrja bæði þolendur og gerendur, gefa þau til kynna að hlutfallslega fleiri svartir Bandaríkjamenn en hvítir gerist sekir um ofbeldi. En munurinn er ekki eins mikill og margar tölur sem er dreift um netið gefa til kynna. Stór hluti af þessum mun liggur í því að ungir svartir menn eru líklegri en hvítir til að búa í hverfum þar sem fátækt er mikil og þar sem of margt ungt fólk deyr af völdum gengjastríða. En af hverju býr hærra hlutfall svartra í slíkum hverfum? Flestar rannsóknir benda til þess að löng saga af skertum tækifærum til menntunar og atvinnu sé þar stór þáttur. Margra kynslóða mismunun hefur jafnframt áhrif á sjálfsmynd og væntingar fólks til menntunar og atvinnu. Það að fæðast utan hjónabands hefur í sjálfu sér ekki áhrif, eins og við Íslendingar ættum sérstaklega að vera meðvituð um. Enda fæðist hér hærra hlutfall barna utan hjónabands en víða annars staðar. Það að alast upp hjá einstæðu foreldri getur haft áhrif í samfélögum sem eru byggð upp fyrir börn sem alast upp hjá tveimur foreldrum, þar sem félagsleg aðstoð er lítil. Það má því segja að skortur á félagslegri aðstoð við einstæða foreldra geti ýtt undir afbrot frekar en það að alast upp hjá einstæðu foreldri.
Krafan um að draga úr fjármagni lögreglu
Skortur á félagslegri aðstoð tengist beint kröfu margra mótmælenda um að draga úr fjármagni lögreglu. Margir líta svo á að ef dregið er úr fjármagni lögreglu verði til peningar til að setja í aðrar annars konar félagslega aðstoð. Í þessu samhengi hefur verið nefnt að draga þurfi úr heimilisleysi, hjálpa fólki sem á við fíkniefnavanda að stríða, auka tækifæri ungs fólk til að mennta sig og auka aðgengi að sálfræði- og félagsráðgjöf. Fólk hefur bent á að aukið fjármagn í aðrar stofnanir en lögregluna muni gera meira fyrir samfélagið í heild, sérstaklega fyrir fólk sem býr við bágar félags- og efnahagsaðstæður. Félagsleg aðstoð er talin frekar til þess fallin að fækka afbrotum heldur en aukin löggæsla. Fáir Bandaríkjamenn vilja hins vegar leggja niður lögregluna.
Afvegaleiðing umræðunnar
Fólk hefur bent á að svartir lögregluþjónar skjóti svarta borgara um það bil hlutfallslega jafn oft og hvítir. Aðrir hafa lagt áherslu á að hvítir Bandaríkjamenn séu líka drepnir af lögreglu. Auk þess hefur verið bent á að lögregluþjónar séu drepnir við störf sín. Allt þetta er rétt. Það er líka rétt að myndbönd af slíku fara yfirleitt ekki í dreifingu á internetinu né er fólk að mótmæli vegna þessara mála.
Ástæða þess að myndbönd af hvítum lögregluþjónum að beita svarta borgara harðræði fara í dreifingu og ýta undir fjöldamótmæli er að slík myndbönd virðast staðfesta það sem margir upplifa að sé útbreitt vandamál í Bandaríkjunum, að lögreglan mismuni svörtu fólki. Margir trúa því að of margir lögregluþjónar séu haldnir kynþáttafordómum eða að almennar aðgerðir lögreglu mismuni svörtu fólki (sbr. kerfisbundin mismunun). Í samræmi við það sem hér hefur komið fram upplifir svart fólk að því sé mismunað af hendi lögreglu vegna þess að því ER mismunað af hendi lögreglu.
Lögreglustarfið er hættulegt og flókið starf. Það er verðugt verkefni að finna leiðir til að til að draga úr hættunni og úr því álagi sem margir lögregluþjónar upplifa. Það verkefni þarf þó ekki að koma í veg fyrir að fólk geti krafist bættrar löggæslu. Að láta eins og það þurfi að velja á milli þessara tveggja kosta hefur aðeins þann tilgang að afvegaleiða umræðuna. Það sama má segja um þann málflutning að til þess að auka félagslega aðstoð þurfi að draga úr fjármagni til lögreglu. Það er ekki ólíklegt að aukin menntun og þjálfun lögreglu skili sér bæði í minni mismunun gegn minnihlutahópum og í öruggara starfsumhverfi lögreglunnar.
Ef aðferðir lögreglunnar í Bandaríkjunum mismuna svörtu fólki á kerfisbundin hátt, t.d. með því að herja á íbúa í hverfum þar sem flestir eru svartir, hefur kynþáttur einstaka lögregluþjóns lítil sem engin áhrif. Það að svartir lögregluþjónar skjóti líka svarta borgara er því ekki staðfesting á að engin kerfisbundin mismun eigi sér stað innan lögreglunnar.
Nýlega las ég íslenskan pistil þar sem því var haldið fram að fólk sem tekur þátt í BLM hreyfingunni geri þá kröfu um að svörtu fólki sé ekki refsað fyrir afbrot sín. Eftir töluverða leit hef ég ekki fundið nokkurn sem hefur gert þá kröfu. Há tíðni svartra meðal þeirra sem eru handteknir, ákærðir og dæmdir í fangelsi staðfestir einmitt að svartir Bandaríkjamenn séu látnir bera ábyrgð á sínum brotum.
Að lokum
Í fullkomnum heimi myndu stjórnendur fara ítarlega yfir stöðuna frá mismunandi sjónarhornum og finna viðeigandi lausnir til að bæta löggæslu. Þau myndu kalla til sín sérfræðinga sem nota vísindalegar rannsóknir til að svara því hvernig staðan er og hvað þarf að gera. Í fullkomnum heimi værum við ekki að lesa fréttir um að brotið sé á mannréttindum mótmælenda. Né að lesa um skemmdaverk og ofbeldi mótmælenda í annars að mestu friðsamlegum mótmælum. Það að búa ekki í fullkomnum heimi dregur ekki úr réttmæti BLM hreyfingarinnar.
Athugasemdir