Ísland hluti af áætlun bandarískra olíumanna á Grænlandi

Banda­rískt fyr­ir­tæki með teng­ingar við Donald Trump hyggst bora eftir olíu á Græn­landi þrátt fyrir skort á leyfi. Sjón­varps­mað­ur­inn Dr. Phil verður með í för og tæki verða flutt í gegnum Ísland af umdeilda stór­fyr­ir­tæk­inu Halli­burton.

Ísland hluti af áætlun bandarískra olíumanna á Grænlandi
Úr hlað­varpi Dr. Phil For­stjóri Greenland Energy sýndi Phil McGraw sigl­inga­leið­ina sem fyr­ir­tækið hyggst fara á leið til olíu­bor­unar í haust.

Ísland verður við­komu­staður banda­rískra olíu­manna í leið­angri þeirra til að bora eftir olíu á Græn­landi í haust. Alræmda verk­taka­fyri­tækið Halli­burton sér um að útvega búnað frá Danmörku og Þýska­landi og flytja hann í gegnum Ísland að sögn for­stjóra.

The Guardian og Afton­bla­det fjöll­uðu um helg­ina um áætl­anir Greenland Energy en fyr­ir­tækið hyggst senda skip með bún­aði til olíu­bor­unar frá Kanada 12. sept­em­ber með það fyrir augum að byrja að bora í októ­ber.

Stjórn­völd á Græn­landi hafa hins vegar varað fyr­ir­tækið við að láta verða af verk­efn­inu þar sem til­skilin leyfi liggja ekki fyrir. Engin olíu­leit­ar­leyfi hafa verið veitt á Græn­landi und­an­farin fimm ár vegna umhverf­is­sjón­ar­miða. Greenland Energy hyggst starfa á grunni gam­als leyfis sem fyr­ir­tækið keypti en sam­þykki stjórn­valda vantar þó enn fyrir breyt­ing­unni.

Færsla á Truth SocialBanda­ríkja­for­seti hefur lengi talað fyrir inn­limun Græn­lands.

Aðstand­endur fyr­ir­tæk­is­ins sverja fyrir það að verk­efnið hafi nokkuð með löngun Donald Trump Banda­ríkja­for­seta til …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Ísland er augljós þjónustu "hub" fyrir verkefni á Grænlandi, sérstaklega austurhlutanum svo það er ekki undarlegt að landið komi fram í þessu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár