Krefjast ábyrgðar á dauðsföllum í haldi ICE

Á árinu hafa 23 látið lífið í haldi banda­rískra inn­flytj­enda­yf­ir­valda. Sam­ein­uðu þjóð­irnar krefj­ast þess að stjórnin axli ábyrgð.

Krefjast ábyrgðar á dauðsföllum í haldi ICE

Mann­rétt­inda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna krefst þess að ábyrgð verði tekin vegna auknum fjölda dauðs­falla á meðal inn­flytj­enda í haldi banda­rískra yfir­valda og hvetur stjórn­völd í Washington til að stöðva brott­vís­anir fólks til staða þar sem það gæti orðið fyrir „óbæt­an­legum skaða“.

Í ávarpi fyrir Mann­réttinda­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna benti Volker Türk á að „fjórir til við­bótar hafi lát­ist í haldi banda­rískra inn­flytj­enda­yf­ir­valda frá síð­ustu skýrslu minni til ráðs­ins“ í júní.

Þar með hafi „alls 23 látið lífið á árinu 2026,“ sagði hann og lagði áherslu á að „draga verði menn til ábyrgðar vegna þess­ara dauðs­falla“.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur gert bar­átt­una gegn ólög­legum inn­flytj­endum að einu helsta for­gangs­máli ann­ars kjör­tíma­bils síns. Yfirvöld hafa hand­tekið þús­undir manna og fjölgað og stækkað varð­halds­mið­stöðvar.

Dauðsföllum fjölgar

Í sam­eig­in­legri skýrslu Human Rights Watch og Physicians for Human Rights í júní kom fram að dán­ar­tíðni meðal fólks í haldi banda­rísku inn­flytj­enda- og toll­gæsl­unnar (ICE) hafi ekki …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár