„Við munum grípa til aðgerða í þágu réttláts og varanlegs friðar“

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir boðar aðgerðir gegn ísraelskum landnemum. Alls skrifa tólf ríki undir yfir­lýsingu þess efnis.

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir utan­ríkis­ráðherra er á meðal tólf utan­ríkis­ráðherra sem sendu frá sér sameiginlega yfir­lýsingu sem varðar viðskipta­þvinganir eða aðrar aðgerðir vegna ólöglegra landtöku­byggða Ísraela í Palestínu sem grafa undan tveggja ríkja lausn.

Í yfir­lýsingunni segir að aðgerðir ríkis­stjórnar Ísraels á Vestur­bakkanum grafi undan möguleika á tveggja ríkja lausn. „Ástandið versnar hratt samhliða fordæma­lausu ofbeldi landnema og útþenslu landnema­byggða, þar á meðal þeirri óásættanlegu ákvörðun að auglýsa útboð vegna E1-landnema­verk­efnisins.“

Fyrirhuguð byggð

Ísraelsk stjórn­völd samþykktu á síðasta ári svokallaða E1-áætlun um uppbyggingu landnema­byggða, eftir að áformin höfðu verið í biðstöðu um áratuga­skeið, meðal annars vegna þrýstings frá bandarískum stjórn­völdum.

E1-landnema­verkefnið er áætlun um uppbyggingu á svæði á Vestur­bakkanum á milli Austur-Jerúsalem og ísraelsku landnema­byggðarinnar Ma'ale Adumim. Samkvæmt áætluninni verða byggðar 1.200 íbúðir á Vestur­bakkanum.

Framkvæmdirnar myndu einangra Austur-Jerúsalem, sem Ísrael hefur innlimað, enn frekar frá öðrum hlutum Vestur­bakkans. Uppbyggingin er því afar umdeild, ekki …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Better late than never, after a Genozide in Gaza and ethnic cleansing in the West Bank, after over 100000 deaths!
    0
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Better late than never, after a Genozide in Gaza and ethnic cleansing in the West Bank, after over 100000 deaths!
    0
  • Hjördís Heiðrún Hjartardóttir skrifaði
    Þorgerður er okkar besti utanríkisráðherra .í mjög langan tíma, hefur staðið sig vel gagnvart Palestínu
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár