Sveitarstjóri með 752 milljónir í árstekjur seldi bát og kvóta

Eyrún Ingi­björg Sig­þórs­dótt­ir, sveit­ar­stjóri Dal­vík­ur­byggð­ar, er í 20. sæti Há­tekju­list­ans í ár. Hún og mað­ur­inn henn­ar seldu bát sem gerð­ur var út frá Tálkna­firði til Ísa­fjarð­ar. Verð­mæti kvót­ans var áætl­að vel yf­ir hálf­an millj­arð.

Sveitarstjóri með 752 milljónir í árstekjur seldi bát og kvóta
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar átti útgerðarfélagið Stegla ehf. ásamt eiginmanni sínum.

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, er sá einstaklingur af sviði stjórnmálanna sem náði efst á Hátekjulista Heimildarinnar í ár. Árstekjur hennar námu tæpum 752 milljónum króna í fyrra en megnið af því voru fjármagnstekjur.

Í samtali við Heimildina útskýrir hún að tekjurnar árið 2025 hafi verið óvenjulegar þar sem hún og maðurinn hennar, Tryggvi Ársælsson, hafi selt krókaaflamarksbátinn Sæla BA 333, sem nú heitir Sæli ÍS 268, til Ísafjarðar. Báturinn var áður gerður út frá Tálknafirði þar sem hjónin höfðu stundað útgerð frá 1991.

„Við seldum hann í október, nóvember í fyrra,“ segir Eyrún. „Ég er trúlega tekjuhærri í launum en maðurinn minn og þess vegna eru fjármagnstekjurnar skráðar á mig.“

Í frétt BB um söluna kemur fram að kaupandinn hafi verið Þórður Emil Sigurvinsson frá Suðureyri, búsettur á Ísafirði, en tilkynnt var um eigendaskiptin þann 7. nóvember. Þórður kom fyrir að útgerð fjögurra annarra báta.

Sæli BA 333 …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár