Boða til minningarstunda fyrir hin látnu

Greint hefur verið frá nöfnum tveggja ung­menna sem lét­ust í bílslysi aðfara­nótt mánu­dags. Þau voru 16 ára og 21 árs gömul. Þriðja stúlkan var fædd árið 2007.

Boða til minningarstunda fyrir hin látnu

Mikil sorg ríkir vegna þess að þrjú ung­menni létu lífið í bílslysi við Krýsu­vík­ur­veg aðfara­nótt mánu­dags. Á morgun hefur verið boðað til minn­ing­ar­stunda á tveimur stöðum. RÚV greinir frá. 

Arndísar Höllu Guð­laugs­dóttur verður minnst í Lága­fells­kirkju klukkan 17.30 á morgun. Hún var sextán ára þegar hún lést, fædd árið 2009. 

Klukkan 18 hefst síðan bæna­stund í Háteigs­kirkju fyrir Benjamín Guð­munds­son. Hann var fæddur árið 2005 og því 21 árs gam­all. Helga Soffía Kon­ráðs­dóttir sókn­ar­prestur hefur umsjón með athöfn­inni. 

Auk þeirra lét lífið stúlka sem fædd var árið 2007. Hún var erlendur rík­is­borg­ari. Ekki hefur enn verið greint frá nafni hennar.  Öll voru þau far­þegar í bíl sem lenti utan vegar. 

Um 200 ung­menni sóttu kyrrð­ar­stund í Lang­holts­kirkju í gær­kvöldi á vegum Mennta­skól­ans við Sund. Skóla­stjóri MS sagði nem­endur harmi slegna. Sumir voru sóttir af for­ráða­mönnum eftir fréttir af frá­falli skóla­systur þeirra og dag­skrá skól­ans vegna nýnema­daga féll niður. 

Lög­reglan vinnur nú að rann­sókn máls­ins og ræðir við vitni.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu