Við Hvíta húsið Mótmæli í kjöl­far and­láts George Floyd hafa staðið yfir í tíu daga sleitu­laust, en lög­reglu­menn sem beittu hann valdi hafa nú verið ákærðir. Mynd: afp

Rísa upp gegn misrétti, ofbeldi og niðurlægingu

Mótmælin vegna dauða George Floyd hafa varpað kast­ljósi á elsta og rót­grón­asta vanda­mál Banda­ríkj­anna. Aðgerða­sinnar og skipu­leggj­endur mót­mæla segja að komið sé að löngu tíma­bæru upp­gjöri við þá kyn­þátta­hyggju sem gegn­sýrir allt dag­legt líf og póli­tík vest­an­hafs. Banda­ríska lög­reglan er sögð órjúf­an­legur hluti af kerfi sem hefur frá upp­hafi nið­ur­lægt blökku­fólk og beitt það skipu­lögðu póli­tísku ofbeldi fyrir hönd hvíta meiri­hlut­ans.

Blökku­menn eru 13% banda­rísku þjóð­ar­innar, lang­flestir afkom­endur þræla sem voru fluttir í járnum frá Afríku á öldum áður. Rétt­inda­bar­átta þeirra, eða til­vist­ar­bar­átta í mörgum til­vikum, hefur staðið í mörg hund­ruð ár og þrátt fyrir að í dag eigi allir að vera jafnir fyrir lögum eru þeir enn fimm sinnum lík­legri til að vera dæmdir í fang­elsi en hvítir sam­borg­arar þeirra. Í könn­unum segj­ast þrír af hverjum fimm þeldökkum karl­mönnum hafa orðið fyrir ofsóknum lög­reglu með því að vera stöðv­aðir að til­efn­is­lausu.

Segjum að þú búir á stiga­gangi í fjöl­býl­is­húsi þar sem alls tíu eiga heima. Ef sex íbúar á stiga­gang­inum hafa per­sónu­lega verið ofsóttir af lög­regl­unni er rétt hægt að ímynda sér að það grípi um sig óör­yggi og van­traust á yfir­völd í hús­inu. Yfir­færðu það nú á 40 millj­ónir manna sem hafa verið beittir kerf­is­bundnu mis­rétti í 400 ár og þú ferð að sjá hversu stórt vanda­málið er.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

#BlackLivesMatter

Fréttir#BlackLivesMatter

Elliði varar við því að íslenska lög­reglan gæti þurft að víg­bú­ast

Ummæli Elliða Vign­is­sonar, bæj­ar­stjóra Ölfuss, um ofbeldi almennra borg­ara gegn lög­regl­unni vöktu hörð við­brögð. Hann áréttar áhyggjur sínar af stöðu íslensku lög­regl­unnar og varar við því að hún gæti þurft að vopn­bú­ast enn frekar. Afbrota­fræð­ingur bendir á að ekk­ert styðji full­yrð­ingar Elliða um vax­andi nei­kvæðni í garð lög­reglu, sem þurfi að fara var­lega í vald­beit­ingu gagn­vart minni­hluta­hópum.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár