Segja efnahagsbrotalögguna í Namibíu fá þrjá mánuði til að ljúka rannsókn Samherjamálsins

Sjömenn­ing­arnir í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu sitja í gæslu­varð­haldi til 14. des­em­ber. Þá kemur vænt­an­lega í ljóst hvort þeir verða ákærðir fyrir mútu­þægni eða ekki.

Segja efnahagsbrotalögguna í Namibíu fá þrjá mánuði til að ljúka rannsókn Samherjamálsins
Gæslu­varð­hald í rúmt ár Sak­born­ing­arnir í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu, meðal ann­ars Bernhard Esau og Tamson Hatuikulipi, verða í gæslu­varð­hadi vegna rann­sóknar máls­ins í sam­tals rúmt ár. Þeir sjást hér í dóms­sal í Namibíu.

Dómstóll í Namibíu ýjaði að því í byrjun vik­unnar að sjömenn­ing­unum í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu yrði sleppt úr gæslu­varð­haldi eftir þrjá mán­uði ef efna­hags­brota­deildin þar í landi, ACC, lýkur ekki rann­sókn máls­ins innan þess tíma. Þetta kemur fram í namibískum fjöl­miðlum.

Sjömenn­ing­arnir, sem grun­aðir eru um að hafa komið að og eða tekið við mútu­greiðslum frá íslenska útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja upp á vel á annan millj­arð króna, hafa setið í gæslu­varð­haldi vegna rann­sóknar máls­ins allt frá því í nóv­em­ber í fyrra. Greint var frá mál­inu í Kveik, Stund­inni og Al Jazeera í sam­vinnu við upp­ljóstr­un­ar­síð­una Wikileaks þann 13. nóv­em­ber í fyrra. 

Sú ályktun að dóm­stóll­inn í Namibíu telji að gæslu­varð­haldið yfir sjömenn­ing­unum sé orðið ansi langt og að ákæru­valdið í Namibíu þurfi að fara að ljúka við rann­sókn sína er dregin í namibíska blað­inu Namibian Sun …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár