Breyttu reglunum eftir mótmæli Kynnisferða

Nýjar leið­bein­ingar hafa verið gefnar út til að heim­ila Kynn­is­ferðum og öðrum hóp­bif­reiðum að flytja komu­far­þega frá Kefla­vík­ur­flug­velli. Strætó er það óheim­ilt. Embætti land­læknis mælir ekki með að fólk sæki far­þega á einka­bíl.

Breyttu reglunum eftir mótmæli Kynnisferða
Kynn­is­ferðir Fyr­ir­tækið mót­mælti nýju regl­unum og hefur því nú verið heim­ilað aftur að flytja komu­far­þega. Mynd: Shutterstock

Sótt­varna­ráð­stöf­unum hefur verið breytt eftir erindi frá Kynn­is­ferðum þannig að heim­ilt er að flytja komu­far­þega frá Kefla­vík­ur­flug­velli og öðrum landamæra­stöðum með hóp­bif­reið. Embætti land­læknis mælir hins vegar ekki með því að fólk sæki far­þega á einka­bílum.

Stundin greindi frá því í síð­ustu viku að Kynn­is­ferðir, eða Reykja­vík Excursions, fyr­ir­tækið sem rekur Flybus rútu­ferð­irnar til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli, hefði haldið áfram að flytja komu­far­þega frá vell­inum til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eftir að nýjar reglur um sótt­varnir tóku gildi. Samkvæmt þeim er óheim­ilt fyrir komu­far­þega að taka stræt­is­vagn eða rútu frá Leifs­stöð þar sem þeir telj­ast í sótt­kví frá því að þeir yfir­gefa landamæra­stöð.

Sendu Kynn­is­ferðir erindi til yfir­valda til að mót­mæla regl­unum og fór það til með­ferðar á meðan fyr­ir­tækið keyrði áfram. Ferða­mála­stofa, Sam­göngu­stofa, emb­ætti land­læknis og almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra birtu svo í gær leið­bein­ingar þar sem akstur komu­far­þega með hóp­bif­reiðum er aftur heim­il­aður. Heimilt er nú að flytja far­þega sem eru komnir í sótt­kví með hóp­bif­reið með því skil­yrði að ein­ungis helm­ingur leyfðra sæta sé fylltur og að far­þegar séu með and­lits­grímur.

Sam­keppn­is­að­ilar Kynn­is­ferða fluttu ekki far­þega eftir að regl­unum var breytt á mið­viku­dag í síð­ustu viku. Airport Direct stöðv­aði rútu­ferðir frá flug­vell­inum sam­kvæmt þjón­ustu­veri og Strætó birti til­kynn­ingu þess efnis að komu­far­þegum væri óheim­ilt að nota almenn­ings­sam­göngur á leið sinni á sótt­kví­ar­stað.

Nýju regl­urnar gilda hins vegar ekki um Strætó þar sem vagn­arnir telj­ast til almenn­ings­sam­gangna en ekki hóp­bif­reiða.

Mæla ekki með að sækja fólk á völlinn

Bannið við akstri komu­far­þega með hóp­bif­reiðum var fyrst birt í upp­lýs­ingum á vef­síðu emb­ættis land­læknis sem tóku gildi mið­viku­dag­inn 19. ágúst. Hefur orðið „hóp­bif­reiðar“ nú verið fjar­lægt af síð­unni, en áfram er óheim­ilt fyrir komu­far­þega að ferð­ast með áætl­un­ar­flugi inn­an­lands og almenn­ings­sam­göngum. „Nota má leigu­bíla auk einka­bíla og bíla­leigu­bíla,“ segir á síð­unni.

Í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar til emb­ætt­is­ins um hvað þetta þýðir kemur fram að komu­far­þega sé heim­ilt að keyra sinn eigin einka­bíl frá flug­vell­inum. „En ef ein­hver getur komið með bíl fyrir þig og skilið eftir á vell­inum þá er það líka hægt,“ segir Guðrún Aspelund, yfir­læknir á sótt­varna­sviði. „Eða þú getur tekið leigu­bíl eða bíla­leigu­bíl. Eins hefur flug­rútan verið að ganga og hægt að nota hana þó við­kom­andi sé í sótt­kví. Ef ein­hver sækir þig þá myndi sá lenda í sótt­kví (og gæti smit­ast) ef þú reyn­ist smit­aður svo við mælum ekki með því.“

„Ef ein­hver sækir þig þá myndi sá lenda í sótt­kví (og gæti smit­ast) ef þú reyn­ist smit­aður svo við mælum ekki með því“

Kynn­is­ferðir eru í meiri­hluta­eigu fjöl­skyldu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem oft­ast er kölluð Eng­eyj­a­rættin. Félagið Alfa hf. á 65 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu og eru stærstu hlut­hafar þess Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna, Guðríður Jóns­dóttir, móðir Bjarna, Jón Bene­dikts­son, bróðir Bjarna, Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir Bjarna, og börn Einars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár