Kynnisferðir keyrðu komufarþega þvert á tilmæli landlæknis

Kynn­is­ferðir, fyr­ir­tæki í eigu fjöl­skyldu Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, keyrðu rútur sínar með komu­far­þegum frá Kefla­vík­ur­flug­velli í morgun, þrátt fyrir að emb­ætti land­læknis segi það óheim­ilt. Sam­keppn­is­að­ilar hafa fylgt til­mæl­unum.

Kynnisferðir keyrðu komufarþega þvert á tilmæli landlæknis
Reykja­vík Excursions Kynn­is­ferðir hafa flutt komu­far­þega þrátt fyrir til­mæli Land­læknis. Mynd: Shutterstock

Kynn­is­ferðir eða Reykja­vík Excursions, fyr­ir­tækið sem rekur Flybus rútu­ferð­irnar til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli, hefur flutt komu­far­þega frá vell­inum til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í morgun þrátt fyrir reglur sem emb­ætti land­læknis kynnir. Þetta fékkst stað­fest hjá afgreiðslu Flybus.

Samkvæmt upp­lýs­ingum emb­ætt­is­ins um reglur sem gilda frá og með deg­inum í dag er óheim­ilt fyrir komu­far­þega á Kefla­vík­ur­flug­velli að taka stræt­is­vagn eða rútu frá Leifs­stöð. Komu­far­þegar geta nú valið um 14 daga sótt­kví eða tvær sýna­tökur. Sú fyrri er við landa­mærin, en sú síð­ari eftir 5 til 6 daga sótt­kví.

„Frá því að farið er frá landamæra­stöð gilda reglur um sótt­kví,“ segir í upp­lýs­ingum emb­ætt­is­ins. „Þegar sýna­töku er lokið skal halda rak­leiðis á sótt­kví­ar­stað með einka­bíl, bíla­leigu­bíl eða leigu­bíl. Ef brýna nauð­syn ber til má gista eina nótt í sótt­kví nærri landamæra­stöð áður en ferð­ast er til end­an­legs dval­ar­staðar í sótt­kví.“

Kynn­is­ferðir eru í meiri­hluta­eigu fjöl­skyldu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem oft­ast er kölluð Eng­eyj­a­rættin. Félagið Alfa hf. á 65 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu og eru stærstu hlut­hafar þess Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna, Guðríður Jóns­dóttir, móðir Bjarna, Jón Bene­dikts­son, bróðir Bjarna, Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir Bjarna, og börn Einars.

Sam­keppn­is­að­ilar Kynn­is­ferða hafa ekki flutt komu­far­þega í dag. Airport Direct hefur stöðvað rútu­ferðir frá flug­vell­inum sam­kvæmt þjón­ustu­veri og Strætó birti til­kynn­ingu þess efnis í gær að komu­far­þegum væri óheim­ilt að nota almenn­ings­sam­göngur á leið sinni á sótt­kví­ar­stað. Leið 55 stoppar við flug­völl­inn.

Átta flug hafa lent á Kefla­vík­ur­flug­velli í morgun. Þrjú þeirra voru frá svæðum sem þar til í gær voru ekki skil­greind sem áhættu­svæði, það er frá Danmörku, Noregi og Þýska­landi. Frá og með deg­inum í dag eru hins vegar öll lönd og svæði heims skil­greind sem slík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár