Lokað á strætó- og rútuferðir komufarþega

Komu­far­þegar þurfa að ferð­ast frá Leifs­stöð með einka­bíl, bíla­leigu­bíl eða leigu­bíl frá og með deg­inum í dag. Þýðir það auk­inn kostnað fyrir hvern far­þega. Óljóst er hver má sækja komu­far­þega á einka­bíl.

Lokað á strætó- og rútuferðir komufarþega
Leifs­stöð Komu­far­þegar mega ekki ferð­ast með rútum eða almenn­ings­sam­göngum.

Óheimilt er fyrir komu­far­þega á Kefla­vík­ur­flug­velli að taka stræt­is­vagn eða rútu frá Leifs­stöð. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Land­læknis og gildir frá og með deg­inum í dag.

Komu­far­þegar geta nú valið um 14 daga sótt­kví eða tvær sýna­tökur. Sú fyrri er við landa­mærin, en sú síð­ari eftir 5 til 6 daga sótt­kví.

„Frá því að farið er frá landamæra­stöð gilda reglur um sótt­kví,“ segir í til­kynn­ingu Land­læknis. „Þegar sýna­töku er lokið skal halda rak­leiðis á sótt­kví­ar­stað með einka­bíl, bíla­leigu­bíl eða leigu­bíl. Ef brýna nauð­syn ber til má gista eina nótt í sótt­kví nærri landamæra­stöð áður en ferð­ast er til end­an­legs dval­ar­staðar í sótt­kví.“

Felur ráð­stöf­unin í sér nokkurn auka­kostnað fyrir komu­far­þega. Ef vinur eða ætt­ingi getur ekki sótt þá með til­heyr­andi elds­neytis- og tæki­fær­is­kostn­aði þurfa þeir að leigja sér bíla­leigu­bíl á vell­inum eða taka leigu­bíl ef áfanga­staður er á Suð­ur­nesjum eða höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Er kostn­aður við slíka ferð leigu­bíla frá 15.500 til 21.990 kr. ef skoð­aðar eru verð­skrár Hreyfils og BSR.

Óljóst er í regl­unum hverjum er heim­ilt að sækja komu­far­þega á flug­völl. Ekki kemur fram hvort öku­maður þurfi að vera heim­il­is­maður komu­far­þega eða hvort við­kom­andi þurfi einnig að fara í sótt­kví eftir ferð­ina. Í sótt­kví „má ekki umgang­ast aðra en þá sem deila heim­il­inu og gæta skal fyllsta hrein­lætis og reyna að halda a.m.k. 1-2 m fjar­lægð í sam­skiptum við aðra heim­il­is­menn,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár