Kynnisferðir keyra áfram og bíða samþykkis

Kynn­is­ferðir hafa keyrt komu­far­þega í tvo daga þvert á til­mæli land­læknis. Yfirvöld vinna að því að koma til móts við erindi fyr­ir­tæk­is­ins og heim­ila aftur akst­ur­inn.

Kynnisferðir keyra áfram og bíða samþykkis
Flybus Kynn­is­ferðir hafa keyrt áfram og sent erindi um að akst­ur­inn verði heim­ill. Mynd: Raf24~commonswiki / CC BY-SA (https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0)

Kynn­is­ferðir, eða Reykja­vík Excursions, fyr­ir­tækið sem rekur Flybus rútu­ferð­irnar til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli, telja sig ekki falla undir skil­grein­ingu emb­ættis land­læknis á þeim aðilum sem óheim­ilt er að flytja komu­far­þega á leið í sótt­kví. Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra stefnir að því að heim­ila Kynn­is­ferðum að keyra áfram sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætt­inu.

Kynn­is­ferðir hafa haldið áfram að flytja komu­far­þega frá vell­inum til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins mið­viku­dag og fimmtu­dag, eftir að nýjar reglur um sótt­varnir tóku gildi. Samkvæmt þeim er óheim­ilt fyrir komu­far­þega að taka stræt­is­vagn eða rútu frá Leifs­stöð. Komu­far­þegar geta nú valið um 14 daga sótt­kví eða tvær sýna­tökur. Sú fyrri er við landa­mærin, en sú síð­ari eftir 5 til 6 daga sótt­kví.

Sam­keppn­is­að­ilar Kynn­is­ferða hafa ekki flutt komu­far­þega frá því að regl­urnar tóku gildi. Airport Direct hefur stöðvað rútu­ferðir frá flug­vell­inum sam­kvæmt þjón­ustu­veri og Strætó birti til­kynn­ingu þess efnis að komu­far­þegum væri óheim­ilt að nota almenn­ings­sam­göngur á leið sinni á sótt­kví­ar­stað. Hvorugur aðil­inn hefur sent erindi vegna máls­ins.

Í upp­lýs­ingum emb­ættis land­læknis kemur skýrt fram að komu­far­þegum sé ein­ungis heim­ilt að ferð­ast frá flug­vell­inum á sótt­kví­ar­stað með einka­bíl, bíla­leigu­bíl eða leigu­bíl. Frá því að farið er frá landamæra­stöð gilda reglur um sótt­kví og ein­stak­lingur „má ekki nota almenn­ings­sam­göngur (inn­an­lands­flug, stræt­is­vagna, hóp­ferða­bíla) ein­göngu leigu­bíla, bíla­leigu­bíla eða einka­bíl“, eins og segir í upp­lýs­ing­unum.

Erindi Kynn­is­ferða er nú til með­ferðar hjá Sam­göngu­stofu, sem mun leggja fram drög að reglum sem almanna­varna­deild vinnur áfram með þeim. Uppfylla þarf ákveðin skil­yrði fyrir akstr­inum.

Kynn­is­ferðir eru í meiri­hluta­eigu fjöl­skyldu Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem oft­ast er kölluð Eng­eyj­a­rættin. Félagið Alfa hf. á 65 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu og eru stærstu hlut­hafar þess Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna, Guðríður Jóns­dóttir, móðir Bjarna, Jón Bene­dikts­son, bróðir Bjarna, Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir Bjarna, og börn Einars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár