Sema opnar sig um líkamsárás: „Lögreglan og löggjafinn í landinu verða að gera miklu betur í að vernda þolendur“

Sema Erla Serdar seg­ist hafa orðið fyrir lík­ams­árás um versl­una­manna­helg­ina fyrir tveimur árum þar sem kona hafi veist að henni með ofbeldi og morð­hót­unum á grund­velli for­dóma og hat­urs. Konan sem um ræðir vísar ásök­unum Semu á bug og hyggst kæra hana fyrir mann­orðs­morð. Hún seg­ist hafa beðið afsök­unar á fram­ferði sínu, sem hafi engu að síður átt rétt á sér.

Sema opnar sig um líkamsárás: „Lögreglan og löggjafinn í landinu verða að gera miklu betur í að vernda þolendur“
Sema Erla Serdar Sema greinir frá kyn­þátta­bund­inni lík­ams­árás sem hún varð fyrir um versl­un­ar­manna­helgi fyrir tveimur árum síðan, en rann­sókn lög­reglu hefur ekki enn náð lyktum. Mynd: Hörður Sveinsson

Sema Erla Serdar segir að lík­ams­árás sem hún hafi orðið fyrir um versl­un­ar­manna­helg­ina fyrir tveimur árum hafi verið drifna af rót­grónu hatri. „Færa mætti rök fyrir því að um hat­urs­glæp hafi verið að ræða,“ segir Sema. Meintur ger­andi er ósam­mála Semu og upp­lifir fram­sögu hennar í fjöl­miðlum sem mann­orðs­morð gegn sér. 

Sema lýsir upp­lifun af árásinni á Facebook-síðu sinni. „Um versl­un­ar­manna­helg­ina voru tvö ár síðan ráð­ist var á mig með lík­am­legu ofbeldi og ítrek­uðum morð­hót­unum fyrir utan veit­inga­stað í Reykja­vík. Ástæðan fyrir árásinni var ég. Það er að segja hver ég er, hvaðan og hver lífs­sýn mín er. Ástæðan fyrir árásinni var rót­gróið hatur á mér sem ein­stak­lingi og fyr­ir­litn­ing á því sem ég stend fyrir.“

Ofbeldið byrjaði á netinu

Sema lagði fram kæru strax eftir versl­un­ar­manna­helgi, en konan sem um ræðir hafði að hennar sögn áreitt hana ítrekað á net­inu allt frá árinu 2014. „Ég fór …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár