Í hverju felst hamingjan?

Fólk á förnum vegi skil­greinir ham­ingj­una, eins og það upp­lifir hana.

Í hverju felst hamingjan?

Hamingjan býr í þakklætinu

Arnhildur Árnadóttir

Mér finnst ham­ingjan fel­ast í því þegar maður getur verið þakk­látur fyrir það sem maður upp­lifir og hefur, það er jafn­vægið sem skap­ast þegar maður hefur allt sem maður þarf og áttar sig á því að það er nóg. Ekki endi­lega af ver­ald­legum toga heldur geta það verið til­finn­ingar eða ástand í fullri með­vit­und. Þar af leið­andi er ham­ingjan ekki fengin frá öðrum heldur mynd­ast út frá því hvernig maður höndlar þær aðstæður sem maður er í. Ham­ingjan skap­ast í hverri og einni mann­eskju og bygg­ist á for­sendum hennar.


Að leyfa mér að finna allar tilfinningar 

Brynja Dan Gunnarsdóttir 

Ham­ingjan fyrir mér er númer eitt, tvö og tíu að fá að vera mamma hans Mána­l­ings. Að fá að eyða líf­inu með öllu fólk­inu mínu. Að leyfa mér að finna allar til­finn­ing­arnar hvort sem þær eru erf­iðar eða ekki, það er allt partur af ferða­lag­inu sem lífið býður upp á og gerir það svo spenn­andi, krefj­andi en ynd­is­legt um leið. Ég finn líka ham­ingj­una í því að berj­ast fyrir því sem ég trúi á, nota rödd­ina mína til þess að standa upp og reyna að breyta til hins betra með því að rugga nokkrum bátum hér og þar af og til.


Minningar sem þú skapar með börnunum 

Hanna Gréta Pálsdóttir 

Það sem kom fyrst í hug­ann þegar ég hugs­aði um ham­ingju voru allar þær góðu og  skemmti­legu minn­ingar sem ég hef skapað með strák­unum mínum og öll litlu augna­blikin sem fær mann til að brosa. Að sjá börnin mín vaxa og dafna, vera stolt móðir og fá tár í augun þegar það er skorað mark í fót­bolta­leik og stigið á svið í skól­anum hvort sem það er að taka þátt í leik­sýn­ingu eða taka við próf­skír­teini við útskrift. Að standa á hæstu tindum lands­ins og upp­lifa víð­átt­una og hafa heilsu til að kom­ast þangað í góðra vina hóp.

Þetta er ham­ingja mín.


Trylltur dans sem stiginn er í núinu 

Helena Margrét Friðriksdóttir 

Fyrir mér liggur ham­ingjan í kyrrð­inni, hug­ar­rónni og eirð­inni sem læð­ist að manni í göngut­úrnum, í mat­ar­boð­inu eða í stof­unni heima. Þegar maður nýtir orku í eitt­hvað stærra en mann sjálfan, þar liggur greið leið að ham­ingju. Ham­ingjan er ásetn­ingur. Ham­ingjan er líka að leyfa sér að líða illa því ham­ingjan er eitt­hvert jafn­vægi; trylltur dans sem stig­inn er í núinu, ekki for­tíð­inni eða fram­tíð­inni. 


Hamingjan felst í því að elska

Steinunn Ása Þorvaldsdóttir

Ham­ingjan felst í því að elska, njóta lífs­ins og vera góður við fólk. Hún felst líka í að vera mann­vinur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár