Dóttir Svandísar greind með heilaæxli

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra segir frá því að dóttir sín, Una Torfa­dóttir, muni und­ir­gang­ast krabba­meins­með­ferð. „Þetta er stærsta verk­efni lífs míns,“ segir Svandís, sem mun starfa áfram sem ráð­herra á meðan með­ferð stendur.

Dóttir Svandísar greind með heilaæxli
Svandís Svav­ars­dóttir Ráðherra til­kynnti um aðstæður fjöl­skyldu sinnar á Facebook síðu sinni. Mynd: Pressphoto / Geiri

Dóttir Svan­dísar Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur greinst með krabba­mein. Frá þessu segir Svandís á Facebook síðu sinni í dag.

„Kæru vinir, nýlega greind­ist Una dóttir mín með heila­æxli sem reynd­ist vera krabba­mein. Nú tekur við löng og ströng krabba­meins­með­ferð. Mitt verk­efni verður að styðja hana í því ferli ásamt fjöl­skyldu og vinum. Þetta er stærsta verk­efni lífs míns.

Ég ætla, með hjálp sam­starfs­fólks og fjar­funda, að sinna áfram störfum heil­brigð­is­ráð­herra og mun skipu­leggja mína vinnu á næst­unni í sam­ræmi við breyttar aðstæður.

Vísa má í þessa færslu en ég mun ekki fjalla meira um þetta mál opin­ber­lega að svo stöddu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár