Vigdís ósátt við að börn sjái myndir af konum í fæðingu

Borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins gagn­rýnir Strætó fyrir að birta aug­lýs­ingar Ljós­mæðra­fé­lags­ins á stræt­is­vagni.

Vigdís ósátt við að börn sjái myndir af konum í fæðingu
Aug­lýs­ing ljós­mæðra Fyrsta ferðin var farin úr Spöng­inni í Graf­ar­vogi 24. júní síð­ast­lið­inn. Mynd: Twitter / Strætó

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, lýsir hneykslan á aug­lýs­ingu Ljós­mæðra­fé­lags Íslands á stræt­is­vagni og gagn­rýnir Strætó BS fyrir að birta hana. 

Ljós­mæðra­fé­lagið ákvað að birta aug­lýs­ingu á Strætó á raf­vagni, með orð­unum: „Við tökum vel á móti þér.“

Vigdís Hauks­dóttirFyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tveimur borg­ar­full­trúum Mið­flokks­ins í Reykja­vík.

Vigdís er ósátt við fram­takið og telur það geta truflað börn að sjá mynd­irnar af konum í fæð­ingu. „Nekt er mjög við­kvæm hjá mörgum hópum í sam­fé­lag­inu - og þetta blasir við börnum sem nota Strætó sem eiga að vera fram­tíðar kúnnar borg­ar­línu,“ sagði hún á Facebook-síðu sinni í morgun, eftir að hafa séð vagn­inn í Mjódd­inni.

Vagninn fór sína fyrstu ferð á göt­unum á mið­viku­dag­inn í síð­ustu viku. Lagt var af stað í fyrstu ferð frá Spöng­inni, á milli Móavegs og Borga­vegs í Graf­ar­vogi, en er einnig lík­ams­hluti sem kemur við sögu í fæð­ingum.

„Eru þeir hjá Strætó að missa vitið?“ spurði Vigdís á Facebook. „Hverju á að ná fram með svona aug­lýs­ingum?“

Ljós­mæðra­fé­lag Íslands er hags­muna­fé­lag ljós­mæðra, sem stofnað var fyrir lið­lega hund­rað árum. Sem einn af 23 borg­ar­full­trúum Reykja­víkur hefur Vigdís með mál­efni Strætó að gera, en félagið er byggða­sam­lag í eigu sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár