Ölfus að semja við Hjallastefnuna – Foreldrar og starfsmenn ósáttir

Unnið er að því að semja við Hjalla­stefn­una um að taka við rekstri leik­skól­ans Berg­heima. Íbúar í Þor­láks­höfn og fyrr­ver­andi starfs­menn lýsa megnri óánægju og tala um virð­ing­ar­leysi. Elliði Vign­is­son bæj­ar­stjóri segir að verið sé að auka gæði leik­skóla­starfs­ins.

Ölfus að semja við Hjallastefnuna – Foreldrar og starfsmenn ósáttir
Styr um ákvörðun bæj­ar­stjórnar Ekki eru allir íbúar Þor­láks­hafnar ánægðir með ákvörðun bæj­ar­stjórnar um að ganga til samn­inga við Hjalla­stefn­una um að taka yfir rekstur leik­skól­ans í bænum.

Starfs­fólki leik­skól­ans Berg­heima í Þor­láks­höfn er veru­lega brugðið eftir að til­kynnt var á mánu­dag um að sveit­ar­fé­lagið Ölfus hefði hafið samn­inga­við­ræður við Hjalla­stefn­una um að taka yfir rekstur leik­skól­ans. Ekkert sam­ráð hafi verið haft við starfs­fólk þar um og ótt­ast það um stöðu sína þess vegna. Þá gagn­rýna íbúar í Þor­láks­höfn að ef af samn­ingum verði þá sé þeim nauð­ugur einn kostur að senda börn sín á leik­skóla sem fylgi stefnu sem einka­að­ili móti, auk þess sem það skjóti mjög skökku við að samn­inga­við­ræður séu hafnar án þess að neitt sam­ráð hafi verið haft við for­elda.

Bæj­ar­stjórn sam­þykkti á fundi sínum á mánu­dag­inn að ganga til við­ræðna við Hjalla­stefn­una um rekstur leik­skól­ans Berg­heima. Sex full­trúar bæði meiri­hluta og minni­hluta greiddu atkvæði með því en for­seti bæj­ar­stjórnar, Gestur Þór Krist­jáns­son, sat hjá. Málið var hið eina sem var á dag­skrá bæj­ar­stjórnar á þessum fundi.

Starfsmenn óttast um stöðu sína

Berg­heimar eru eini leik­skólk­inn sem rek­inn er í Þor­láks­höfn og því hafa íbúar Þor­láks­hafnar tak­markað val um að senda börn sín á annan leik­skóla. Starfs­menn Berg­heima sem Stundin ræddi við vildu ekki koma fram undir nafni enda sögð­ust þeir ótt­ast um stöðu sína. Þeir lýstu því þó að til­kynn­ing hefði verið þeim reið­ar­slag og högg fyrir það og þau teldu fram­tíð sína í óvissu. Bæði væri alls óljóst hvort starfs­menn myndu halda vinnu sinni en eins þyrfti starfs­fólk þá að und­ir­gang­ast þá hug­mynda­fræði sem Hjalla­stefnan vinni eftir, sem inni­ber meðal ann­ars kynja­skipt­ingu barn­anna á leik­skól­anum.

Gagn­rýni­vert væri að ekk­ert sam­tal hefði átt sér stað heldur aðeins til­kynnt að samn­inga­við­ræður væru hafnar. Enginn hafi vitað af þessu innan leik­skól­ans og það hafi verið fyrst á mánu­dag­inn sem starfs­fólk hafi heyrt af mál­inu þegar full­trúar bæj­ar­stjórnar og hópur frá Hjalla­stefn­unni hafi mætt á fund starfs­fólks og þau upp­lýst um að hafnar væru við­ræður um að Hjalla­stefnan tæki við rekstri Berg­heima. Þá var einnig gagn­rýnt að full­trúar Hjalla­stefn­unnar væru þegar byrj­aðir að hafa afskipti af leik­skóla­starf­inu og byrj­aðir að kalla starfs­fólk á fundi til við­ræðna.

Í athuga­semdum á Facebook-síðu Hafn­ar­frétta, frétta­mið­ils Þor­láks­hafn­ar­búa, þar sem frétt um málið er deilt, gagn­rýna íbúar mjög að ekki skuli hafa verið haft sam­ráð við þá um samn­inga­við­ræð­urnar. Aðferða­fræði Hjalla­stefn­unnar sé umdeild og það sé skrýtið að for­eldrum bjóð­ist ekki annar val­kostur.

Segir vinnubrögðin ófagleg

Hrafn­hildur Hlín Hjart­ar­dóttir er íbúi í Þor­láks­höfn, á barn á Berg­heimum, er leik­skóla­kenn­ari og fyrr­ver­andi starfs­maður Berg­heima. Hún er veru­lega ósátt við hvernig staðið er að mál­inu öllu. „Þetta er algjört virð­ing­ar­leysi við starfs­menn og for­eldra. Það er virð­ing­ar­leysi að taka svona stóra ákvörðun um stefnu­mót­andi breyt­ingu án þess að tala við kóng né prest.“

„Það er eins og þessu sé bara kastað út af ein­hverju skrif­stofu­fólki sem hefur engan skiln­ing á starfi leik­skól­ans“

Segir ákvörð­un­ina glapræðiHrafn­hildur Hlín Hjart­ar­dóttir segir allt of langt gengið með því að hefja samn­inga við Hjalla­stefn­una án þess að ráðg­ast við kóng eða prest.

Hrafn­hildur bendir á að þær upp­lýs­ingar sem hafi borist um málið, og komi frá sveit­ar­fé­lag­inu, séu mjög mis­vísandi. Greint hafi verið frá því að búist sé við að Hjalla­stefnan taki við rekstr­inum á næstu dögum til að mynda en svo sé nú talað um að setja eigi á fót stýri­hóp með aðkomu for­eldra og starfs­manna. „Það eru allir að fara í sum­ar­frí, er ætl­ast til þess að fólk vinni í stýri­hóp í sum­ar­frí­inu sínu eða á þá bara ekki að hafa það með í ráðum. Hvað á eig­in­lega að gera? Þetta eru ekki fag­leg vinnu­brögð, það er eins og þessu sé bara kastað út af ein­hverju skrif­stofu­fólki sem hefur engan skiln­ing á starfi leik­skól­ans.“

Hrafn­hildur segir að henni hugn­ist ekki að hafa ekki val um að senda sitt barn annað en á Hjalla­stefnu­leik­skóla. „Það er ábyggi­lega margt þarna gott en það er líka margt sem ég set spurn­inga­merki við. Mér finnst algjört glapræði að henda þessu svona fram og halda að eng­inn hafi skoðun á þessu. Það er gengið allt of langt, með frekju og virð­ing­ar­leysi.“

Bæjarstjóri segir samráð verða haft

Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri Ölfuss, segir að engar breyt­ingar verði á aðgengi barna í Þor­láks­höfn að leik­skól­anum, leik­skóla­gjöld og opn­un­ar­tími verði óbreytt og sveit­ar­fé­lagið hafi eftir sem áður sömu stjórn­un­ar­legu aðkomu að leik­skól­anum og verið hefur. Hins vegar muni, ef samn­ingar tak­ist, leik­skól­inn taka upp Hjalla­stefn­una.

Hvað varðar gagn­rýni íbúa, for­eldra og starfs­manna á að ekki hafi verið haft sam­ráð við þau vill Elliði ekki taka undir það. „Ferlið er innan við tveggja sól­ar­hringa gam­alt og það er ekki búið að semja við Hjalla. Bæj­ar­stjórn kom saman klukkan fjögur á mánu­dag­inn og ákvað að taka upp við­ræður við Hjalla. Innan við klukku­tíma síðar er starfs­mönnum til­kynnt um að taka eigi upp við­ræður við Hjalla og að mynd­aður verði stýri­hópur um fram­kvæmd­ina með aðkomu starfs­manna og for­eldra. Innan við tveimur tímum frá ákvörðun er búið að til­kynna for­eldrum þetta. Innan við þremur tímum eftir að fundur er hald­inn er búið að senda frétta­til­kynn­ingu á bæj­ar­mið­il­inn og til­kynna íbúum þetta. Núna hefj­ast samn­inga­við­ræður, með aðkomu sveit­ar­fé­lags­ins, með aðkomu Hjalla, með aðkomu for­eldra og með aðkomu starfs­manna.“

Athygli vekur, í ljósi þess sem Elliði segir hér að framan, að Stundin hefur upp­lýs­ingar um að ein­hverjum starfs­mönnum Berg­heima hafi verið til­kynnt um að semja ætti við Hjalla­stefn­una um rekstur leik­skól­ans þegar í hádeg­inu síð­ast­lið­inn mánu­dag, þó að fundur bæj­ar­stjórnar þar sem ákvörðun var tekin hafi þá ekki enn farið fram. Eins voru full­trúar Hjalla­stefn­unnar mættir á svæðið áður en ákvörð­unin var tekin.

Eðlilega er starfsfólki brugðið

Elliði segir að það muni taka þrjá til fjóra mán­uði, hið minnsta, að klára samn­inga­við­ræður. Hann segir að lögð hafi verið áhersla á að eyða óvissu sem starfs­menn og for­eldrar væru í vegna þessa og því hafi strax verið upp­lýst um hver staðan væri. Í dag muni Hjalla­stefnan funda með for­eldrum til að kynna þeim stöð­una og á mánu­dag­inn muni bæj­ar­full­trúar funda með for­eldrum.

„Það er ekki verið að fara þessa leið af því að allt sé ónýtt, það er verið að reyna að gera góðan rekstur enn betri“

Spurður af hverju við­ræður við Hjalla­stefn­una um rekstur á Berg­heimum væru hafnar segir Elliði að bæj­ar­full­trúar hafi mikla trú á Hjalla­stefn­unni, þar séu sér­fróðir aðilar um rekstur leik­skóla og vilji bæj­ar­stjórnar sé að með þessu sé hægt að gera góðan leik­skóla enn betri. „Það er ekki verið að fara þessa leið af því að allt sé ónýtt, það er verið að reyna að gera góðan rekstur enn betri. Hjalli hefur sér­fræði­þekk­ingu á rekstri leik­skóla sem við höfum ekki, við erum að reka allt frá drátt­ar­báti og frá­veitu­kerfi upp í leik- og grunn­skóla.“ Verið sé að leita leiða til að gera hlut­ina betur.

Spurður hvernig starfs­mönnum leik­skól­ans hafi orðið við þessi tíð­indi segir Elliði að þeim hafi brugðið við. „Þeim var bara eðli­lega brugðið, og mjög auð­velt að bera virð­ingu fyrir því. Þetta er bæði starf sem fólk brennur fyrir að vinna og þetta er líka lífs­við­ur­væri þess.“

Elliði segir að í gær hafi starfs­menn Hjalla­stefn­unnar tekið við­töl við starfs­fólk leik­skól­ans og hann hafi fengið þær upp­lýs­ingar að þeim fundum að yfir­gnæf­andi hluti starfs­manna myndi halda áfram. Það hafi verið von bæj­ar­stjórnar. Spurður hvort skil­yrði þess efnis hafi verið sett áður en til samn­inga­við­ræðna var gengið neit­aði Elliði því. „Við stjórnum ekki ráðn­ingum hjá Hjalla. Okkar von er sú að allir starfs­menn haldi sínum stöðum. Allur réttur starfs­manna verður virtur, allt sem þeir hafa áunnið sér mun halda sér. Til við­bótar verður vinnu­tími þeirra styttur, um fimm klukku­tíma á viku fyrir starfs­menn í fullu starfi og laun þeirra hækka um einn launa­flokk. Starfs­mönnum verður ekki fækkað, þetta er ekki aðgerð til að skera niður eða draga úr starfs­manna­kostn­aði. Þetta er fyrst og fremst til að auka gæði þjón­ust­unnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár