Kynþáttahyggja í fjölmenningarsamfélagi: „Liðin tíð að Ísland sé bara hvít þjóð“

Birgitta El­ín Hassell lýsir reynslu sinni af ras­isma á Ís­landi. Logi Pedro Stef­áns­son segir: „Þetta er ekk­ert nema hat­ur. það þarf að taka á því þannig og svara því.“ Fé­lags­fræð­ing­ur­inn Dr. Kjart­an Páll Sveins­son seg­ir mik­il­vægt að opna um­ræð­una, hversu erf­ið sem hún kann að vera: „Það krefst þess að við sting­um á kýl­um.“

Kynþáttahyggja í fjölmenningarsamfélagi: „Liðin tíð að Ísland sé bara hvít þjóð“

Eðli og umfang kyn­þátta­hyggju og ras­isma á Íslandi hefur lengi verið dulið hvítri slikju eins­leitn­innar. Þorri lands­manna er ljós að hör­und og hið þjóð­lega við­mið hefur skil­greinst út frá því. Þegar hvítt er talið eðli­legt og allt annað skil­grein­ist sem óvenju­legt mynd­ast stig­veldi kyn­þátta sem skapar grund­völl fyrir for­dóma, mis­skipt­ingu og ofbeldi. Það getur verið auð­velt að missa af ummerkjum um vanda­mál sem ekki bein­ast að manni sjálfum, en þegar litið er til sam­eig­in­legrar reynslu þeldökkra Íslend­inga koma fram mynstur sem ekki má horfa fram­hjá.

Í stöðu­færslu sinni á Facebook lýsir tón­lista­mað­ur­inn Logi Pedro Stef­áns­son reiði  gagn­vart fjöl­miðlum sem hann segir gera lítið úr reynslu svartra ein­stak­linga af kyn­þátta­bundnu mis­rétti. Stundin ræddi við Birgittu Elínu Hassell sem lýsir reynslu sem markast af skörun ras­isma og kynja­mis­réttis sem hún er enn að vinna í: „Þú átt að sam­þykkja ákveðna áreitni og vera ekki með vesen, þannig að hluti af því sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár