Í hverju felst hamingjan?

Fólk á förnum vegi svarar því hvað felst í ham­ingj­unni. Það getur verið ákvörðun, við­horf, tengsl eða starf, lækj­ar­niður og lóu­söngur.

Í hverju felst hamingjan?

Ninný - Jónína Magnúsdóttir

Und­ir­staða ham­ingj­unnar að mínu mati er að ein­beita sér að því jákvæða í líf­inu, þróa með sér jákvæðar hugs­anir og þakk­læti fyrir það sem maður hefur. Ham­ingjan er því lífs­stíll sem hægt er að velja. Ham­ingjan felst í að njóta augna­bliks­ins, elska það sem er og sleppa eft­ir­sjá og of miklum vænt­ingum um fram­tíð­ina. Að rækta vini og ætt­ingja eins og fal­leg blóm því við upp­skerum eins og við sáum. Fylgja draumum sínum og vera trúr sjálfum sér. Fyrir mig hefur virkað vel að hug­leiða og kyrra hug­ann að morgni og að kveldi að fara yfir dag­inn og þakka fyrir allt það góða sem dag­ur­inn færði mér.

Hjördís Björg Andrésdóttir

Í ham­ingju felst vellíðan í sál­ar­tetr­inu. Það þarf að huga að innri líðan ásamt lík­am­legri til að líða vel og það getur skapað ákveðna ham­ingju. Í ham­ingju getur falist að fara í góðan göngutúr og njóta augna­bliks­ins ásamt nátt­úr­unni. Við gleymum okkur um stund þegar við gerum eitt­hvað skemmti­legt sem á hug okkar allan og það er ham­ingju­stund. Einnig þarf maður að horfa á það jákvæða í líf­inu og það er viss ham­ingja. Prjóna­skapur er mikil hug­arró og það að skapa og búa eitt­hvað til veitir gleði og ánægju. 

[if gte mso 9]> 96 Normal 0 false false false EN-US X-NONE X-NONE

Sveindís Anna Jóhannsdóttir

Hamingja mín felst í því að þekkja sjálfa mig og finna jafn­vægi í líf­inu, hvort sem það teng­ist fjöl­skyldu­lífi eða starfi. Dætur mínar, eig­in­maður minn, ynd­is­lega móðir mín sem er orðin 91 árs, systur mínar ásamt stór­fjöl­skyld­unni og vinum eru það dýr­mætasta í líf­inu. Ég er svo lánsöm að eiga dásam­lega fjöl­skyldu og vini þar sem fólk er til staðar fyrir hvert annað, bæði í gleði og sorg. Vinnan mín færir mér einnig ham­ingju. Ég starfa við það sem ég hef áhuga á og fæ hand­leiðslu í starfi sem hjálpar til við að halda jafn­væg­inu í línu­dansi lífs­ins.

Svandís Sturludóttir

Hamingja er ákvörðun sem ég vel á hverjum degi. Fyrir mig snýst hún um sátt, að vera sátt við lífið og taka á móti því eins og það er. Að geta verið með öllum til­finn­ingum mínum, líka þeim erf­iðu og mætt þeim af vin­semd. Að sýna mér vel­vild og standa við lof­orðin gagn­vart sjálfri mér. Ham­ingjan felst í að taka eftir og njóta litlu hlut­anna. Að fara yfir það sem ég er þakk­lát fyrir á hverjum degi. Að drekka kaffi­bolla á morgn­ana og hlusta á fugla­söng­inn. Að heyra hlátur og gleði í mínum og hlæja með þeim. Að elska og knúsa fólkið mitt og njóta þess sem lífið færir mér.

Páll Eysteinn Guðmundsson

Hamingja er lækj­ar­niður og lóu­söngur, urð og grjót upp í mót, fjalls­tindur og útsýni yfir fjöll og dali.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár