Andlát við Laxá: „Hann lést við uppáhaldsiðju sína“

Maðurinn hét Árni Björn Jónasson. Eft­ir­lif­andi kona hans segir hann hafa lát­ist við eft­ir­læt­isiðju sína, urriða­veiði í Laxá í Aðaldal.

Andlát við Laxá: „Hann lést við uppáhaldsiðju sína“
Lést við veiðar Árni var við urriða­veiðar í Laxá í Aðaldal þegar and­lát hans bar að garði. Mynd: Aðsend

Maðurinn sem lést við veiðar í Laxá í Aðaldal í fyrra­dag hét Árni Björn Jónasson. Árni var 73 ára gam­all, verk­fræð­ingur og búsettur í Kópavogi. Árni lætur eftir sig eig­in­konu, Guðrúnu Ragn­ars­dóttur fram­halds­skóla­kenn­ara, þrjú börn og sex barna­börn. Meðal barna Árna er Ragna Árna­dóttir, skrif­stofu­stjóri Alþingis og fyrr­ver­andi ráð­herra. 

Árni hafði verið við veiði í Laxá en ekki skilað sér til baka að kvöldi 31. maí síð­ast­lið­inn. Björg­un­ar­sveitir á Norð­ur­landi og Aust­ur­landi voru kall­aðar út til leitar ásamt þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar. Fannst Árni um þrjúleytið aðfar­arnótt 1. júní, lát­inn.

Guðrún kona Árna setti inn minn­ing­ar­orð um mann sinn á Facebook-síðu sína. „Elsku Árni minn er lát­inn - hann lést í gær við upp­á­halds­iðju sína, urriða­veiði í Laxá í Þing­eyj­ar­sýslu. Við fjöl­skyldan færum veiði­fé­lög­unum, björg­un­ar­sveitum, lög­regl­unni og Land­helg­is­gæsl­unni okkar inni­leg­ustu þakkir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár