Píratar njóta næst mests stuðnings flokka

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist enn stærstur flokka. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins dalar mark­vert. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina minnkar um sjö pró­sentu­stig frá því í byrjun mán­aðar.

Píratar njóta næst mests stuðnings flokka
Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dregst saman Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist nú tæp­lega sjö pró­sentum minni en í upp­hafi mán­að­ar­ins. Mynd: Davíð Þór

Fylgi Pírata hefur auk­ist um þrjú pró­sentu­stig milli kann­ana MMR og mælist flokk­ur­inn nú með 14,6 pró­senta stuðn­ing, næst mest flokka. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur nú sem fyrr mests stuðn­ings en 23,5 pró­sent aðspurðra segj­ast myndu kjósa flokk­inn borið saman við 22,2 pró­sent í síð­ustu könnun sem birt var 8. maí síð­ast­lið­inn. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með 6,4 pró­senta fylgi og hefur ekki mælst lægri frá síð­ustu kosn­ingum. Í síð­ustu könnun var fylgi flokks­ins 9,4 pró­sent og er mun­ur­inn martk­tækur. Breyt­ingar á fylgi ann­arra flokka eru innan vik­marka.

Sam­fylk­ingin mælist þriðji stærsti flokkur lands­ins, nýtur nú 13,3 pró­senta stuðn­ings en mældis síð­ast með 12,3 pró­senta stuðn­ing. 11,3 pró­sent aðspurðra segj­ast nú styðja Viðreisn borið saman við 12,3 pró­sent í síð­ustu könnun. 10,8 pró­sent aðspurðra sögð­ust nú myndu kjósa Mið­flokk­inn ef gengið yrði til kosn­inga en voru síð­ast 9,7 pró­sent. Vinstri græn mæl­ast með einu pró­sentu­stigi minni stuðn­ing nú en 8. maí, 10,6 pró­sent nú en 11,6 pró­sent þá.

Fylgi Sós­í­alista­flokks Íslands stendur því sem næst í stað og er nú 4,1 pró­sent en mæld­ist síð­ast 4,3 pró­sent. Þá segj­ast 3,6 pró­sent styðja Flokk fólks­ins borið saman við 3,9 pró­sent síð­ast. Stuðn­ingur við aðra mæld­ist 1,8 pró­sent sam­an­lagt.

Svar­fjöldi í könn­un­inn var 944 ein­stak­lingar og þar af gáfur 76,9  pró­sent upp afstöðu. 6,7 pró­sent sögð­ust vera óákveðnir, 7,1 pró­sent sögð­ust myndu skila auðu, 2,7 pró­sent sögðus ekki myndu kjósa og 6,6 pró­sent gáfu ekki upp afstöðu.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dalar tölu­vert frá fyrri könnun. Hann mæld­ist nú 47,5 pró­sent og minnkar um tæp sjö pró­sentu­stig en síð­ast mæld­ist stjórnin með stuðnin 54,2 pró­senta aðspurðra. 

Framsókn dalar mark­vertBreyt­ingar á fylgi flokk­anna eru allar innan skekkju­marka utan þess að fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins dalar mark­vert.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár