Í hverju felst hamingjan?

Katrín Eydís Hjörleifsdóttir

Fyrir mér er ham­ingjan ákvörðun og hún verður til innra með manni sjálfum. Það er ekki hægt að ætl­ast til þess að aðrir beri ábyrgð á manns eigin ham­ingju. Það er líka þannig að það sem veldur ham­ingju­til­finn­ing­unni er mis­mun­andi milli ein­stak­linga í tíma og rúmi. Ég sjálf horfi á litlu hlut­ina í líf­inu, það sem er í kringum mig á hverjum tíma, fólkið og nátt­úr­una. Fyrir mér er það að vera ham­ingju­samur að vera sátt við gær­dag­inn, líta á dag­inn í dag sem gjöf og hlakka til morg­un­dags­ins. Þetta er eig­in­lega spurn­ing um lífs­skoðun.

Raul Andre Mar Nacaytuna 

Ham­ingjan getur verið hug­læg, per­sónu­leg og ein­stök fyrir hvern og einn. Hamingja mín hefur verið afleið­ing lífs­reynslu minnar frá því á æsku­árum til dags­ins í dag. Lífs­reynsla skiptir meira máli heldur en efn­is­legir hlutir og það að ferð­ast hefur veitt mér mikla gleði. Sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur upp­lifi ég árangur og ham­ingju þegar ég sýni samúð, færni og ábyrgð. Ég hef í gegnum lífið gert mér grein fyrir mik­il­vægi þess að velta hlut­unum fyrir mér sem hefur komið mér í skiln­ing um að það sé alltaf ástæða til að vera ham­ingju­samur og njóta lífs­ins.

Jóna Ósk Konráðsdóttir

Hamingja verður til af hug­ar­á­standi eða til­finn­ingu sem veitir jákvætt og nota­legt við­horf.  Hamingja held ég að sé að vera sáttur við sjálfan sig og þá sem standa manni næst. Hamingja er traust og trún­aður fyrir sjálfum sér og líf­inu. Hamingja felst ekki í fullt af pen­ingum. Þeir verða að vera til staðar en ég held þó að ham­ingjan felist meira í því að afla tekna og safna fyrir því sem hug­ur­inn girn­ist. Þegar því tak­marki er náð veitir það ánægju/ham­ingju yfir árangri sem náðst hefur. Eitt lítið bros gerir krafta­verk og með því getur orðið til ham­ingja. 

Ívar Ólafsson

Hamingja er að vera sáttur við sjálfan sig og aðstæður sínar, hverjar sem þær kunna að vera. Und­ir­staða ham­ingju er að finna til­gang í líf­inu, jafn­vel hafa mark­mið að stefna að. Bíbí Ólafs­dóttir mið­ill sagði að til­gangur lífs­ins væri að rækta kær­leik­ann. Það er góður til­gangur. Svo er mik­il­vægt að eiga ein­hvern að, vera ekki aleinn, hvort sem um fjöl­skyldu eða vini er að ræða. Góð heilsa, and­leg og lík­am­leg, er lík­leg til þess að veita ham­ingju. Umburð­ar­lyndi og fyr­ir­gefn­ing eflir ham­ingj­una en hat­rið skemmir hana. Ekki er heppi­legt að gera kröfu um að vera stöðugt að springa af ham­ingju því að í venju­legu lífi skipt­ast á skin og skúrir.

Tinna Hrafnsdóttir

Fyrir mér er ham­ingjan fólgin í því að finna feg­urð­ina í hvers­dags­leik­anum, litlu hlut­unum í líf­inu sem eru kannski ekki merki­legir en þó svo langt frá því að vera sjálf­sagðir. Ég er kannski að brjóta saman þvott af börn­unum mínum og þá getur ómerki­legur sokkur minnt mig á hvað ég er heppin að fá að elska, elska þetta barn sem á þennan sokk, og þá hellist yfir mig sterk ham­ingju­til­finn­ing. Að geta hvílt í núinu með bros á vör, notið ferða­lags­ins í stað þess að ein­blína á áfanga­stað­inn, fundið fyrir þakk­læti og sátt í sál­inni er ham­ingjan fyrir mér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár