Missti vinnuna og nýtir tímann í að sinna sjálfum sér

Sölvi Breið­fjörð missti vinn­una sem lag­er­stjóri hjá ljósa- og hús­gagna­versl­un­inni Lumex vegna COVID-19. Hann ótt­ast ekki fram­tíð­ina þó hann sjái eftir starf­inu og von­ist eftir að fá það aftur þegar atvinnu­lífið glæð­ist. Hann ætlar að nýta rólega tím­ann í að huga að heils­unni.

Missti vinnuna og nýtir tímann í að sinna sjálfum sér
Bjart­sýnn Sölvi á ekki von á að glíma lengi við atvinnu­leysið og ætlar að huga að heils­unni þangað til hann fer aftur að vinna. Mynd: Heida Helgadottir

Þremur starfs­mönnum ljósa- og hús­gagna­versl­un­ar­innar Lumex var á dög­unum sagt upp vegna sam­dráttar í kjöl­far þess að COVID-19-far­ald­ur­inn reið yfir, inn­kaupa­stjóra, versl­un­ar­stjóra og lag­er­stjór­anum Sölva Breið­fjörð. „Ég var lag­er­stjóri en var fljót­lega eftir að ég byrj­aði að vinna þarna einnig far­inn að vinna í búð­inni og aðstoða þar, gera til­boð, ljósa­plön og ýmis­legt fleira. Þetta var skemmti­legt starf sem höfð­aði mikið til mín, því ég er mikið fyrir fal­legar hönn­un­ar­vörur.“ 

Hann segir að ástandið vegna veirunnar hafi hægt á allri versl­un­inni. Við­skipta­vinir hafi byrjað að halda að sér höndum, bæði fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar, og vör­urnar hafi ekki streymt eins vel til lands­ins og áður, vegna ástands heims­ins og minnk­andi skipa- og flug­um­ferðar. Fljót­lega hafi því eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins ekki séð sér annað fært en að segja starfs­mönn­unum upp, en starfs­fólk­inu var til­kynnt að staðan yrði end­ur­skoðuð eftir nokkra mán­uði. Sölvi sér ekki aðeins eftir vinn­unni heldur ekki síður sam­starfs­fólki sínu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár