Keyptu eigin hlutabréf á 6 milljarða frá því neyðarstigi var lýst yfir

Félög í Kaup­höll­inni hafa frestað arð­greiðslum vegna COVID-19 far­ald­urs­ins, en keypt eigin hluta­bréf. End­ur­kaup, eins og arð­greiðslur, eru leið til að skila hagn­aði til eig­enda. Sumar end­ur­kaupa­á­ætl­anir hófust eftir að neyð­ar­stigi almanna­varna var lýst yfir 6. mars.

Keyptu eigin hlutabréf á 6 milljarða frá því neyðarstigi var lýst yfir
Bónus Hagar reka fjölda versl­ana, en fyr­ir­tækið hefur sett 800 millj­ónir króna í starfs­loka­greiðslur stjórn­enda og end­ur­kaup á eigin hluta­bréfum frá því að neyð­ar­stigi almanna­varna var lýst yfir. Mynd: Kristinn Magnússon

Fyr­ir­tæki í Kaup­höll­inni hafa end­ur­keypt eigin hlutafé fyrir rúma 6 millj­arða króna frá því að neyð­ar­stigi almanna­varna var lýst yfir 6. mars. End­ur­kaup koma oft í stað arð­greiðslna sem aðferð til að skila hagn­aði til hlut­hafa fyr­ir­tækj­anna.

Fyr­ir­tækin sem um ræðir eru Marel, Arion banki, Festi, Hagar, Reitir, Skelj­ungur og Heima­vellir. Sum þeirra hófu end­ur­kaupa­á­ætl­anir sínar eftir að neyð­ar­stigi hafði verið lýst yfir, en í öðrum til­vikum voru þær þegar hafnar. Sum fyr­ir­tækj­anna greiddu einnig út arð til hlut­hafa vegna síð­asta rekstr­ar­árs á meðan neyð­ar­stig stóð yfir, en önnur hafa frestað arð­greiðslum.

Á sama tíma hafa stjórn­völd gripið til aðgerða til að mæta þeim efna­hags­legu áföllum sem dunið hafa yfir í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins. Á meðal þeirra eru hluta­bóta­leiðin svo­kall­aða, þar sem starfs­hlut­fall starfs­manna er skert og þeim gert á móti mögu­legt að fá greiðslur úr rík­is­sjóði til að mæta tekju­tap­inu. Ekki liggur fyrir yfir­lit um hvaða fyr­ir­tæki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár