Í dag klukkan 13: Landvernd verðlaunar bestu umhverfisfréttirnar

Ungu fólki bauðst í vetur að taka þátt í sam­keppni á vegum Land­verndar um bestu umhverf­is­frétt­irnar. Verkefni bár­ust frá 10 fram­halds­skólum í sam­keppn­ina og verða þau bestu verð­launuð í dag. Stundin streymir við­burð­inum í dag klukkan 13.

Ungu fólki bauðst í vetur að taka þátt í sam­keppni á vegum Land­verndar um bestu umhverf­is­frétt­irnar. Verkefni bár­ust frá 10 fram­halds­skólum í sam­keppn­ina og verða þau bestu verð­launuð í dag. Stundin streymir við­burð­inum í dag á for­síðu Stund­ar­innar, í þess­ari frétt og á Facebook-síðum Stund­ar­innar, Land­verndar og Norræna húss­ins. Útsend­ingin hefst klukkan 13.

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing frá Land­vernd um við­burð­inn:

Ungu fólki bauðst í vetur að taka þátt í sam­keppni á vegum Land­verndar um bestu umhverf­is­frétt­irnar. Verkefni bár­ust frá 10 fram­halds­skólum í sam­keppn­ina og verða þau bestu verð­launuð þann sjötta maí. 

Sýnd verða brot úr verk­efnum sig­ur­veg­ara og rætt við höf­unda um hug­mynd­ina þann 6. maí næst­kom­andi klukkan 13:00. Verð­launa­af­hend­ingin er unnin í sam­starfi við Norræna húsið. Við­burð­inum verður streymt og má fylgj­ast með hér, á facebook við­burði Land­verndar, á vef­síðu Norræna húss­ins og Stundin.is. 

Sýningin er hluti af verk­efn­inu Ungt umhverf­is­frétta­fólk sem er unnið í sam­starfi við fram­halds­skóla á land­inu. Það er rekið í 45 löndum víðs­vegar um heim­inn og er vett­vangur fyrir ungt fólk til að kynna sér umhverf­is­mál með gagn­rýnum hætti og miðla upp­lýs­ingum til almenn­ings eftir fjöl­breyttum leiðum. Vel hefur verið tekið í verk­efnið og verður sam­keppnin ansi spenn­andi að sögn verk­efna­stjóra. Land­vernd hefur ásett sér að reka verk­efnið í bæði fram­halds­skólum, efri stigum grunn­skóla og á háskóla­stigi þegar fram líða stundir.

Verk­efnið veitir skólum tæki­færi til þess að gefa umhverf­is­mál­unum aukið vægi í kennslu. Þeir fá fag­lega aðstoð kenn­ara við að kynna sér umhverf­is­málin og mikil áhersla er lögð á að heim­ildir séu áreið­an­legar. Slíkt er nauð­syn­legt á tímum fals­frétta.  

Mikil áhersla er lögð á aðkomu ung­menna í verk­efn­inu. Í stýri­hóp verk­efn­is­ins sitja t.d. aðilar frá Ungum umhverf­issinnum, Lands­sam­tökum íslenskra stúd­enta og Sambandi íslenskra fram­halds­skóla­nema. Ung­menna­sam­tökin veita auk þess sér­stök verð­laun ári hverju, fyrir það verk­efni sem höfðar best til ung­menna hverju sinni og eiga einnig full­trúa í ung­liða­dóm­nefnd­inni, þeir eru Jóhanna Steina; for­seti SÍF, Hjördís Sveins­dóttir; rit­ari LÍS og Tinna Hall­gríms­dóttir; vara­for­maður UU.

Hin dóm­nefnd verk­efn­is­ins sam­anstendur af reynslu­ríku fólki í miðlun upp­lýs­inga á vett­vangi fjöl­miðla og kvik­mynda­gerðar. Dóm­nefnd­ina skipa Snærós Sindra­dóttir, fjöl­miðla­kona, Benedikt Erlings­son, leik­ari og leik­stjóri og Ragn­hildur Þrast­ar­dóttir, blaða­maður. 

Við hvetjum alla áhuga­sama til þess að horfa á streymið og kynn­ast því sem ungt fólk er að gera í umhverf­is­málum í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár