Ef þú hefur rætt við einhvern sem sótt hefur tíma í KAP (kundalini activation process) hefur viðkomandi líklegast reynt að útskýra það lítillega fyrir þér en sagt síðan: „Ég segi þér ekki meira, þú verður bara að prófa.“ Áður en þú lest lengra vil ég að þú vitir að þetta er dagsatt og að í þessari grein leynast engin eiginleg svör við gátunni um hvað gerist í kap. En í viðleitni til að útskýra það sem gæti mögulega beðið þín, hef ég ákveðið að skrifa hér um mína fyrstu upplifun af slíku.
Í fyrstu skal ég viðurkenna að ég efaðist mjög hvort kap væri eitthvað fyrir mig. Einhvers konar hugleiðsla sem hefði þau áhrif að fólk tæki ósjálfrátt að hreyfast um og finnast það jafnvel taka á sig líki dýra eða finnast það liggja í og sameinast mold. Í sannleika sagt fannst mér þetta hljóma eins og dáleiðsla sem gæti …
Athugasemdir