Smitvarnir auknar á Alþingi

Auka þarf smit­varnir á Alþingi eftir að sex starfs­menn, sem allir vinna í sama húsi, og einn þing­maður, Smári McCarthy þing­maður Pírata, eru smit­aðir af kór­óna­veirunni. Aðeins þeir þing­menn, sem þurfa að taka þátt í umræðum á þing­fundum hverju sinni, verði í Alþing­is­hús­inu.

Smitvarnir auknar á Alþingi
Alþingi Smit­varnir verða auknar á Alþingi.

Auka þarf smit­varnir á Alþingi eftir að Smári McCarthy, þing­maður Pírata, og sex starfs­menn Alþingis, sem allir vinna í sama húsi, reynd­ust smit­aðir af kór­óna­veirunni. Mælst er til þess að aðeins þeir þing­menn, sem þurfa að taka þátt í umræðum á þing­fundum hverju sinni, séu í Alþing­is­hús­inu og nefnda­fundir munu fara fram með fjar­funda­bún­aði. Þá hefur verið ákveðið að ein­ungis það starfs­fólk Alþingis, sem þarf að sinna verk­efnum á þing­svæð­inu, mæti til vinnu.

Þetta kemur fram í tölvu­pósti sem við­bragð­steymi Alþingis sendi þing­mönnum og starfs­fólki seint í gær­kvöldi. Þar er fólk enn­fremur hvatt til þess að halda sig heima, finni það fyrir flensu­ein­kennum.

Fjórir eru í fyr­ir­skip­aðri sótt­kví, þing­menn og starfs­fólk, og að auki eru nokkrir þing­menn og starfs­menn í sjálf­skip­aðri sótt­kví vegna per­sónu­legra heilsu­fars­á­stæðna sinna eða nákom­inna.

Smári McCarthyHann er nú í ein­angrun eftir að hafa greinst með COVID-19 smit.

Smári McCarthy segir á facebooksíðu sinni að hann hafi farið í sjálf­skip­aða sótt­kví fyrir viku eftir að hann hafi farið að hósta og á föstu­dag­inn hafi hann verið greindur með COVID-19 smit. Þar seg­ist Smári vera hress og að ein­kennin séu væg. Hann muni reyna að sinna þing­störfum eftir bestu getu. Hann skrifar enn­fremur að hann viti ekki hvar eða hvernig hann hafi smit­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár