Tvö sveitarfélög herða COVID-19 aðgerðir

Vest­manna­eyja­bær og Húnaþing vestra hafa hert aðgerðir vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Aðgerð­irnar hafa þegar tekið gildi í Vest­manna­eyjum. Í Húna­þingi vestra tekur nýtt fyr­ir­komu­lag gildi klukkan 22 í kvöld og þar fara íbúar í svo­kall­aða úrvinnslu­sótt­kví.

Tvö sveitarfélög herða COVID-19 aðgerðir

Tvö sveit­ar­fé­lög hér á landi, Vest­manna­eyja­bær og Húnaþing vestra, hafa hert aðgerðir vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.  

Á sjö­unda tím­anum í kvöld setti Ragn­heiður Jóna Ingi­mars­dóttir, sveit­ar­stjóri í Húna­þingi vestra, inn til­kynn­ingu á vef­síðu sveit­ar­fé­lags­ins fyrir hönd aðgerða­stjórnar almanna­varna á Norð­ur­landi vestra. Þar segir að fimm smit hafi verið stað­fest þar. Því verði gripið til hertra sótt­varn­ar­að­gerða strax. 

„Frá og með kl. 22:00 í kvöld laug­ar­dag­inn 21.mars 2020 skulu allir íbúar sveit­ar­fé­lags­ins sæta úrvinnslu­sótt­kví. Úrvinnslu­sótt­kví er tíma­bundin ráð­stöfun meðan unnið er að smitrakn­ingu. Í henni felst að ein­ungis einn aðili af hverju heim­ili getur í hvert sinn yfir­gefið heim­ilið til að afla aðfanga.  Úrvinnslu­sótt­kvíin gildir ekki um lífs­nauð­syn­lega starf­semi, s.s. hjúkr­un­ar­heim­ili, sjúkra­hús og dreif­ingu og verslun með mat­væli og elds­neyti,“ segir í til­kynn­ing­unni.

„Einungis einn aðili af hverju heim­ili getur í hvert sinn yfir­gefið heim­ilið til að afla aðfanga“

Ofan­greind ákvörðun gildir þar til aðgerð­ar­stjórn til­kynnir um annað.  

„Jafn­hliða gildir almennt sam­komu­bann svo sem þegar hefur verið aug­lýst en þó með þeirri breyt­ingu að hámarks­fjöldi aðila sem mega koma saman í Húna­þingi vestra eru 5 aðilar,“ segir þar enn­fremur.

Í til­kynn­ing­unni segir að höfðað sé til sam­fé­lags­legrar ábyrgðar allra íbúa til að virða ofan­greint og vera alls ekki á ferli að nauð­synja­lausu.

Eyjamenn herða samkomubann

Síðdegis í dag var sam­komu­bann í Vest­manna­eyjum hert, en þar hafa 11 smit COVID-19 veirunnar verið stað­fest. Í því felst að við­burðir, þar sem tíu eða fleiri koma saman, eru óheim­ilir. Þá er aðgangur fólks að íþrótta­mann­virkjum, lík­ams­rækt­ar­stöðvum, skemmti­stöðum, spila­sölum, spila­kössum og söfnum óheim­ill og sömu­leiðis felst í því bann við starf­semi, þar sem nálægð er mikil er eins og hár­greiðslu­stofur, snyrti­stofur og nudd­stofur. Þá felst í bann­inu enn­fremur að íþrótta­starf barna og full­orð­inna, þar sem nálægð er minni en tveir metrar og ein­hver sam­eig­in­leg notkun á bún­aði er fyrir hendi, er bannað. 

„Þá er aðgangur fólks að íþrótta­mann­virkjum, lík­ams­rækt­ar­stöðvum, skemmti­stöðum, spila­sölum, spila­kössum og söfnum óheim­ill“

Þessar aðgerðir tóku gildi frá og með klukkan 18 í dag og í til­kynn­ingu  á vef­síðu Vest­manna­eyja­bæjar segir að í vissum til­vikum verði, auk þessa, gripið til hertra skil­yrða hvað sótt­kví varðar í nán­asta hópi þeirra sem eru með stað­fest smit og verður það metið í hverju til­viki.

Í báðum sveit­ar­fé­lög­unum eru aðgerð­irnar ákveðnar í sam­ráði við almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra og sótt­varna­lækni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár