Aðgerðir verða hertar

Hertar aðgerðir til að hindra útbreiðslu COVID-19 far­ald­urs­ins verða kynntar í kvöld eða á morgun og munu sér­stak­lega bein­ast að þeim stöðum þar sem mikil nánd er á milli fólks. Þá gætu þær átt eftir að hafa enn meiri áhrif á skóla­starf en nú er.

Aðgerðir verða hertar

Aðgerðir stjórn­valda til að hefta útbreiðslu kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins verða hertar. Þetta var til­kynnt á fundi almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra í dag. Þessar aðgerðir verða kynntar í kvöld eða á morgun og munu sér­stak­lega bein­ast að þeim stöðum þar sem mikil nánd er á milli fólks.

Þá gætu þær átt eftir að hafa enn meiri áhrif á skóla­starf en nú er.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði að aðgerð­irnar myndu  bein­ast að stöðum þar sem mikil nánd er á milli starfs­fólks og við­skipta­vina eins og til dæmis í litlum versl­unum og þær gætu átt eftir að hafa þau áhrif að ein­hver starf­semi myndi lok­ast. Til greina kæmi að herða enn frekar reglur um skóla­starf í leik- og grunn­skólum. Tilvik væru um að heil­brigð­is­starfs­fólk kæm­ist ekki til vinnu sinnar vegna þeirra tak­mark­ana sem gerðar hafa verið á skóla­starfi og hugs­an­lega þyrfti að grípa til for­gangs­lista almanna­varna sem heil­brigð­is­starfs­fólk er meðal ann­ars á.
Nú hafa 473 smit verið stað­fest, 457 eru í ein­angrun og 5.448 í sótt­kví. Tólf eru á sjúkra­húsi, 16 er batnað, 753 hafa lokið sótt­kví og 9.768 sýni hafa verið tekin. 

Látið af valkvæðum aðgerðum

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, sagði af þeim tólf, sem lægju inni á spít­al­anum með COVID-19 sýk­ingu, væri  einn á gjör­gæslu.

Alma Möller land­læknir sagði á fund­inum að verið væri að end­ur­skipu­leggja þjón­ustu heil­brigð­is­kerf­is­ins, meðal ann­ars væri verið að und­ir­búa að láta af val­kvæðum skurð­að­gerðum og öðrum inn­grip­um sem ­sem ekki væru brýn.  Hún ítrek­aði að allar aðgerð­ir, ­sem ekki þyldu bið , yrðu að sjálf­sögðu gerð­ar.

Að sögn Ölmu er ekki búið að upp­færa spálíkan íslenskra stjórn­valda varð­andi áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins hér á landi, en væri miðað við dán­ar­tíðni á Ítalíu mætti gera ráð fyrir tutt­ug­u dauðs­föllum af völdum sjúk­dóms­ins hér. „Við erum að vona að far­ald­ur­inn fari mild­ari höndum um okk­ur,“sagði Alma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár