Nemandi í Hagaskóla smitaður af COVID-19 veirunni

Skóla­hald heldur áfram en tvær bekkj­ar­deildir og fjórir kenn­arar hafa verið sett í sótt­kví.

Nemandi í Hagaskóla smitaður af COVID-19 veirunni
Smit stað­fest Nemandi í 10. bekk í Haga­skóla er smit­aður af COVID-19 veirunni.

Staðfest hefur verið að nem­andi í 10. bekk í Haga­skóla í Reykja­vík er smit­aður af COVID-19 veirunni. Tveir tíundu bekkir skól­ans hafa verið settir í sótt­kví og fjórir kenn­arar við skól­ann einnig.

Greint var frá því í gær að nem­endur í 10. bekk í Haga­skóla hefðu verið sendir heim vegna mögu­legs COVID-19 smits eins nem­anda. Það var svo stað­fest í dag. Nem­and­inn sem um ræðir var síð­ast í skól­anum 13. mars síð­ast­lið­inn. Samkvæmt skila­boðum frá skóla­stjórn­endum er gert ráð fyrir að skipu­lögð kennsla í öðrum 10. bekkjum, í 8. bekk og 9. bekk, verði með óbreyttu sniði á morgun.

„Það er ljóst að róð­ur­inn þyng­ist dag frá degi en hér í Haga­skóla eins og ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu skiptir sam­taka­máttu miklu máli,“ segir í tölvu­pósti til for­eldra frá skóla­stjóra.

Samkvæmt nýj­ustu tölum hafa 330 smit verið stað­fest hér …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár