Blað brotið í sögu Alþingis

„Þetta er afar óvenju­legt og hefur lík­lega aldrei gerst áður í sögu Alþingis, “ segir Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, um þá ákvörðun for­sætis­nefndar Alþingis að engir þing­fundir verði haldnir næsta mán­uð­inn, frá og með deg­inum í dag og til 20. apríl til að stemma stigu við útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Starf­semi Alþingis hefur nú verið skert eins mikið og mögu­legt er.

Blað brotið í sögu Alþingis
Stein­grímur J á þingi Það eru tíð­indi í sögu Alþingis að starfs­á­ætlun hafi verið tekin úr sam­bandi með þeim hætti sem nú hefur verið gert segir Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis.

Engir þing­fundir verði haldnir næsta mán­uð­inn, frá og með deg­inum í dag og til 20. apríl, sam­kvæmt ákvörðun for­sætis­nefndar Alþingis til að stemma stigu við útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Starf­semi Alþingis hefur nú verið skert eins mikið og mögu­legt er. „Þetta er afar óvenju­legt og hefur lík­lega aldrei gerst áður í sögu Alþingis, “ segir Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis

Formenn þing­flokk­anna fund­uðu í morgun og for­sætis­nefnd Alþingis síðan í fram­hald­inu. Þar var ákveðið að starfs­á­ætlun Alþingis yrði tekin úr sam­bandi og  að á þessum tíma yrðu ein­göngu boð­aðir þing­fundir til að takast á við brýn mál sem tengj­ast Covid-19 heims­far­aldr­inum.

Stein­grímur segir að ein­róma sam­staða hafi verið um þessa ákvörðun. „Ég held að allir hafi upp­lifað að við værum komin á þennan stað og það var komin eft­ir­spurn eftir að það væri skýr lína í þessu og að fólk þyrfti ekki að vera í vafa.“

Hann segir að þetta sé vissu­lega ekki í fyrsta skiptið sem starfs­á­ætlun Alþingis hafi verið tekin úr sam­bandi. Það hafi meðal ann­ars verið gert þegar sýnt hafi verið að lengja þurfi þing­hald þegar farið hefur verið fram yfir starfs­á­ætlun. „En það á sér ekki hlið­stæðu að tak­marka störf Alþingis með þessum hætti. Sem betur fer höfum við ekki þurft að glíma við svona óvin áður.“

Þingfundur á morgun

Þingið mun reyndar koma saman á morgun, föstu­dag, en þá hefur þing­fundur verið boð­aður klukkan 10:30. Stein­grímur segir að þar verði að öllum lík­indum afgreidd tvö laga­frum­vörp um við­brögð við Covid-19. „Við höfum þegar afgreidd þrenn lög, erum með þessi tvö í hönd­unum sem verða þá afgreidd á morgun og síðan á ég von á að þingið komi aftur saman í næstu viku til að afgreiða tvö frum­vörp til við­bótar.“ 

Að sögn Stein­gríms hafa ýmsar örygg­is­ráð­staf­anir verið gerðar á Alþingi und­an­farnar vikur. Nú sé þriðja vikan sem þingið starfi sam­kvæmt við­bragðs­á­ætlun. „Ég held að við höfum verið fyrsta þingið meðal nágranna­land­anna sem virkj­aði slíka áætlun,“ segir Stein­grímur.

Tveir varaforsetar geymdir heima

Hann segir að í þess­ari áætlun felist meðal ann­ars að sam­neyti for­seta­hóps Alþingis hefur verið tak­markað, en í þeim hópi eru, auk hans, sex vara­for­setar Alþingis og tveir áheyrn­ar­full­trúar. „Við höfum til dæmis geymt tvo vara­for­seta heima alla þessa viku og þeir hafa tekið þátt í störfum Alþingis í gegnum fjar­funda­búnað. Okkur ber skylda til að tryggja að þeir sem eru í þessum hópi verði ekki allir  óstarf­hæfir á sama tíma.“

„Ég held að við höfum verið fyrsta þingið meðal nágranna­land­anna sem virkj­aði slíka áætlun“

Kom ekki til greina að halda þing­störfum áfram í gegnum fjar­funda­búnað? „Nei, við teljum það ekki hægt. Við teljum að stjórn­ar­skráin standi í vegi fyrir því og það væri viss áhætta ef taka ætti ákvarð­anir í slíku umhverfi þar sem kveðið er á um að lög telj­ist ekki sam­þykkt nema 32 séu í þing­sal. Laga­setn­ing við slíkar aðstæður væri lík­lega ekki stjórn­skipu­lega gild,“ segir Stein­grímur og vísar þar í 53. grein stjórn­ar­skrár­innar sem kveður á um að Alþingi geti ekki gert sam­þykki um mál nema meira en helm­ingur þing­manna sé á fundi og taki þátt í atkvæða­greiðslu.

„Laga­setn­ing við slíkar aðstæður væri lík­lega ekki stjórn­skipu­lega gild“

Spurður hver við­brögð þing­manna og starfs­fólks Alþingis hafi verið við þess­ari ákvörðun segir hann að þau hafi ein­kennst af skyn­semi. „Það er vissu­lega alvar­legra yfir­bragð yfir fólki nú en oft áður. En allir eru æðru­lausir og taka þessu af yfir­vegun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár