Alþingi mun eingöngu koma saman vegna Covid-19

For­sætis­nefnd Alþingis sam­þykkti á fundi sínum í morgun að taka úr sam­bandi starfs­á­ætlun Alþingis fyrir 150. lög­gjaf­ar­þing frá og með deg­inum í dag og til og með 20. apríl fyrst um sinn. Á þeim tíma verða ein­göngu boð­aðir þing­fundir til að takast á við brýn mál sem tengj­ast COVID-19 heims­far­aldr­inum.

Frá Alþingi
Frá Alþingi Starfs­á­ætlun Alþingis fyrir 150. lög­gjaf­ar­þing hefur verið tekin úr sam­bandi frá og með deg­inum í dag og til og með 20. apríl fyrst um sinn. Mynd: Pressphotos

For­sætis­nefnd sam­þykkir að taka úr sam­bandi starfs­á­ætlun Alþingis fyrir 150. lög­gjaf­ar­þing frá og með deg­inum í dag að telja og til og með 20. apríl fyrst um sinn. Á þeim tíma verða ein­göngu boð­aðir þing­fundir til að takast á við brýn mál sem tengj­ast COVID-19 heims­far­aldr­inum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Alþingis.

Þar segir að brott­fall starfs­á­ætl­unar þýði einnig að komið geti til þing­funda á þeim tíma sem áður var reiknað með funda­hléi um páska, en þá ein­göngu af sömu ástæðum, þ.e. ef brýnt verður að grípa til ráð­staf­ana vegna ástands­ins og atbeina Alþingis þarf til, eins og segir á vef­síð­unni.

„Enn fremur sam­þykkir for­sætis­nefnd að hefð­bundin funda­á­ætlun fasta­nefnda sé tekin úr sam­bandi og ein­göngu verði boðað til nefnda­funda í þeim nefndum sem þurfa að taka til umfjöll­unar þing­mál sem tengj­ast við­brögðum við COVID-19 far­aldr­inum. Óski aðrar fasta­nefndir eftir sem áður eftir því að funda þarf …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár