„Við erum í fótbolta mjög lengi, í þrjá tíma“

Þeir Ottó Örn Ragn­ars­son, Jakob Már Kjart­ans­son og Alex­ander Sig­ur­steins­son eru allir níu ára og eru í 4. bekk í Vatns­enda­skóla í Kópavogi. Skóla­dag­ur­inn þeirra hefur nú verið styttur um tvo tíma á dag og þeir fara í skól­ann þrjá daga í viku. Allar íþrótta­æf­ingar þeirra hafa fallið niður, en félag­arnir eru iðnir við að finna sér eitt­hvað fyrir stafni og hafa lært nokkur ný orð með því að fylgj­ast grannt með fréttum af útbreiðslu kór­óna­veirunnar.

„Við erum í fótbolta mjög lengi, í þrjá tíma“
Þrír félagar Skóla­dag­ur­inn hjá Ottó, Jakobi og Alex­ander sem eru í 4. bekk í Vatns­enda­skóla í Kópavogi hefur nú verið styttur og þeir fara núna þrjá daga í viku í skól­ann. Íþrótta- og skák­æf­ingar þeirra hafa verið felldar niður og þeir hafa nú tals­vert meiri frí­tíma en áður sem þeir nýta til ýmissa hluta. Mynd: Heiða Helgadóttir

Styttri skóla­dagur, tóm­stunda­starf fellur niður og mörg ný orð í fréttum. Daglegt líf íslenskra grunn­skóla­barna hefur tekið tals­verðum breyt­ingum að und­an­förnu eftir að gripið var til aðgerða til að stemma stigu við útbreiðslu kór­óna­veirunnar. 

Þeir Ottó Örn Ragn­ars­son, Jakob Már Kjart­ans­son og Alex­ander Sig­ur­steins­son eru allir níu ára og eru í 4. bekk í Vatns­enda­skóla í Kópavogi. Þeir æfa allir hand­bolta og fót­bolta og stunda einnig skák­æf­ingar af kappi, allar slíkar æfingar hafa nú fallið niður en félag­arnir láta ágæt­lega af sér, þrátt fyrir allt, og segj­ast litlar áhyggjur hafa af stöðu mála.

Spurðir hvað hafi breyst í þeirra lífi und­an­farið svarar Jakob að allar æfingar hafi fallið niður. 

„Skólinn stytt­ist, alveg um tvo klukku­tíma,“ bendir Ottó á. „Við erum í fríi. Það er ekk­ert mikið að gera,“ segir Jakob. „Við þurfum líka að taka auka­æf­ingar, því það eru engar æfingar,“ segir Alex­ander og bætir við að slíkar æfingar geri þeir vin­irnir í bíl­skúr for­eldra sinna.

Styttri skóladagur þrjá daga í viku

Félag­arnir segja að búið sé að skipta árgang­inum þeirra niður í fleiri og smærri hópa en áður var. 

Jakob: „Þú átt ekki að fara út úr stof­unni þinni nema bara til að fara á kló­settið og í nesti.“

Alex­ander: „Og líka til að ná í eitt­hvað.“

„Þetta byrj­aði með leð­ur­blöku eða snák“

Ottó: „Og fara í úti­vist.“

Alex­ander: „En það má bara einn hópur fara í úti­vist í einu.“

Auk þess að vera búnir tveimur tímum fyrr í skól­anum, eru þeir ein­göngu þrjá daga vik­unnar í skól­anum og hafa því umtals­vert meiri frí­tíma nú en áður, sem þeir verja á ýmsan hátt. Jakob seg­ist vera svo­lítið í tölv­unni og Ottó spilar á spil.  „Við erum í fót­bolta mjög lengi, í þrjá tíma,“ segir Alex­ander.

Þetta byrjaði með leðurblöku eða snák

Og blaða­maður Stund­ar­innar kom ekki að tómum kof­unum hjá félög­unum þegar þeir voru spurðir um ástæðu þessa alls. Þeir hafa fylgst grannt með stöðu mála og höfðu meðal ann­ars kynnt sér upp­runa kór­óna­veirunnar.

Ottó: „Þetta byrj­aði með leð­ur­blöku eða snák.“

Jakob: „Og svo er þetta bara búið að dreifast.“

Aðspurðir segj­ast þeir ekki þekkja neinn sem hefur veikst, en vinur þeirra er í sótt­kví. Þá eiga þeir líka afa og ömmur í sótt­kví. 

Hafa aukið við orðaforðann

Spurðir hvort þeir viti hvað orð eins og sótt­kví, sam­komu­bann, ein­angrun og útgöngu­bann þýða segj­ast félag­arnir hafa kynnt sér það, enda hafa þeir fylgst vel með fréttum. 

 „Ég hef áhyggjur af ömmu minni og afa“ 

Jakob: „Sóttkví er þegar þú mátt ekki fara út í tvær vikur.“

Ottó: „En þú mátt samt fara í göngutúr. Bara hitta ekki neinn.“

Jakob: „Bara hitta ekki neinn í tvær vikur. Bara þann sem býr hjá þér. Útgöngu­bann þýðir að þú átt ekki að fara út nema fara í apó­tek eða versla í mat­inn. Sam­komu­bann er að þú setur ein­hvern tak­mark­aðan fjölda á stað.“

Spurðir hvort þeir hafi áhyggjur svara þeir neit­andi. „En ég hef áhyggjur af ömmu minni og afa,“ segir Ottó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár