Alþjóðasamvinnan reyndist ótraust

Viðbrögð margra þjóða við kór­óna­veiru­far­aldrinnum sýna að þegar á reynir stendur alþjóða­sam­starf ekki eins traust og ætla mætti. Þetta segir Silja Bára Ómars­dóttir doktor í stjórn­mála­fræði og dós­ent í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands. Óvíst sé að segja til um lang­tíma­á­hrifin á sam­skipti ríkja heims.

Alþjóðasamvinnan reyndist ótraust
Covid-19 „Hér á landi hefur fag­fólk staðið í eld­lín­unni í allri upp­lýs­inga­gjöf og því varla hægt að setja póli­tískan merki­miða á ákvarð­an­irnar sem er verið að taka,“ segir Silja Bára Ómars­dóttir doktor í stjórn­mála­fræði. Mynd: Shutterstock

Kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn er að mörgu leyti próf­steinn á styrk alþjóða­sam­fé­lags­ins.  Þetta segir Silja Bára Ómars­dóttir, doktor í stjórn­mála­fræði og dós­ent í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands. Hún segir að við­brögð margra þjóða sýni að þegar á reyni standi alþjóða­sam­starf ekki eins traust og ætla mætti, heldur hugsi hver um sinn hag.

Hún hefur fylgst með við­brögðum og aðgerðum alþjóða­sam­fé­lags­ins við far­aldr­inum og segir að tals­verður munur sé þar á. „Hér á landi hefur fag­fólk staðið í eld­lín­unni í allri upp­lýs­inga­gjöf og því varla hægt að setja póli­tískan merki­miða á ákvarð­an­irnar sem er verið að taka. En víða erlendis, eins og til dæmis í Danmörku og í Banda­ríkj­unum og nú síð­ast á vett­vangi leið­toga Evr­ópu­sam­bands­ins, hafa stjórn­mála­menn verið í þessu hlut­verki. Það hefur komið fram gagn­rýni á að stjórn­mála­menn séu að taka póli­tískar ákvarð­anir sem séu ekk­ert endi­lega byggðar á vís­inda­legum grunni.“

Silja Bára Ómars­dóttir Hún segir að útbreiðsla kór­óna­veirunnar hafi meðal ann­ars …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár