Danir herða reglurnar

Frá og með klukkan 10 á morgun mega ekki fleiri en tíu koma saman í Danmörku, hvort sem er utan- eða inn­an­dyra. Bannið á að gilda til 30. mars. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi dönsku rík­is­stjórn­ar­innar sem nú stendur yfir.

Danir herða reglurnar

Frá og með klukkan 10 á morgun mega ekki fleiri en tíu koma saman í Danmörku, hvort sem er utan- eða inn­an­dyra. Bannið á að gilda til 30. mars. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi dönsku rík­is­stjórn­ar­innar sem nú stendur yfir.

Þetta er gert til að stemma stigu við útbreiðslu Covid-19  veirunnar.   Allar íþrótta­mið­stöðvar, lík­ams­rækt­ar­stöðvar og ýmis þjón­usta, þar sem starfs­fólk er í mik­illi nálægð við við­skipta­vini, eins og til dæmis hár­greiðslu- og snyrti­stofur munu einnig loka og einnig veit­inga­staðir og kaffi­hús.

977 smit hafa nú greinst í Danmörku, að því er fram kom á fund­inum. 82 Danir eru á sjúkra­húsum vegna veirunnar og 18 eru á gjör­gæslu. Fjórir hafa lát­ist í land­inu af völdum veirunnar.

„Ástandið verður sífellt alvar­legra,“ sagði Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur á fund­inum.  „Við höfum gert margt og við höfum gert það hratt. Þetta eru ein­stakar aðstæður. En það er þörf fyrir  harð­ari aðgerðir.  Það er mik­il­vægt að við rjúfum smit­keðj­una núna.  Við verðum að gera allt sem við getum.  Þetta verður ekki auð­velt“

„Það er þörf fyrir  harð­ari aðgerðir.  Það er mik­il­vægt að við rjúfum smit­keðj­una núna.  Þetta verður ekki auð­velt“

Blaða­manna­fund­ur­inn var hald­inn í svoköll­uðum spegla­sal í danska for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og var ein­ungis einum frétta­manni frá hverjum fjöl­miðli hleypt inn á hann. 

Danadrottning ávarpar þegna sína í kvöld

Margrét Þór­hildur Dana­drottn­ing mun ávarpa þjóð sína núna á eftir klukkan 20 að stað­ar­tíma, klukkan 19 að íslenskum tíma. Í umfjöllun danska rík­is­út­varps­ins, DR, segir að slíkt ávarp sé nán­ast for­dæma­laust í sögu Dan­merkur. Drottn­ingin hafi hingað til ekki flutt opin­ber ávörp af þessu tagi nema um ára­mót. Hún hafi til dæmis ekki gert það þegar hryðju­verk var framið í Danmörku árið 2015.

„Ávarp Krist­jáns 10. þegar danska þingið kom saman í fyrsta skiptið eftir heim­styrj­öld­ina síð­ari, kemur upp í hug­ann,“ segir Sebast­ian Olden Jørg­en­sen sagn­fræð­ingur við Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla í sam­tali við DR. 

Danska rík­is­stjórnin hefur þegar gripið til ýmissa aðgerða til að hindra útbreiðslu veirunnar. Landa­mærum Dan­merkur var lokað á laug­ar­dag­inn og í síð­ustu viku var öllum skólum þar lokað og rík­is­starfs­menn sendir heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár