Samkomubann fram yfir páska

Sam­komu­bann verður frá og með 15. mars til að hægja á útbreiðslu Covid-19 veirunnar.. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi, sem Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra boð­aði til í Ráð­herra­bú­staðnum klukkan 11. Bannið varir fram yfir páska.

Samkomubann fram yfir páska
Frá blaða­manna­fundi heil­brigð­is­ráð­herra í morgun Sam­komu­bann verður í fjórar vikur frá og með 15. mars. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sam­komu­banni verður  komið á frá 15. mars til 12. apríl til að hægja á útbreiðslu Covid-19 veirunnar.  Þetta kom fram á blaða­manna­fundi, sem Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra boð­aði til í Ráð­herra­bú­staðnum klukkan 11 í morgun.

„Við erum á for­dæma­lausum tímum sem kalla á for­dæma­lausar aðgerðir,“  sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. „Þau tíma­mót hafa orðið að sótt­varna­læknir hefur sent heil­brigð­is­ráð­herra til­lögu um sam­komu­bann. Þetta er í fyrsta skiptið í lýð­veld­is­sög­unni,“ sagði Katrín. Hún sagð­ist full­viss um að sam­fé­lagið gæti tek­ist vel á við þetta.

Svandís sagði að bannið  væri sam­kvæmt lögum um sótt­varnir og verið væri að virkja heim­ildir sótt­varna­laga.  „Það sem um ræðir er sam­komu­bann,“ sagði hún. Bannið myndi ekki eiga við um Leifs­stöð.

Framhaldsskólum og háskólum lokað

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herraSamkomur þar sem 100 manns eða fleiri koma saman verða tak­mark­aðar í fjórar vikur frá mið­nætti 15. mars. Þetta þýðir að bannið mun vara til 12. apríl, sem er páska­dagur.

Í þessu felst, sagði Svandís, að sam­komur þar sem 100 manns eða fleiri koma saman verða tak­mark­aðar í fjórar vikur  frá mið­nætti 15. mars.  Þetta þýðir að bannið mun vara til 12. apríl, sem er páska­dagur. Að auki verður gerð sú krafa að þar sem fólk komi saman verði minnst tveir metrar milli fólks. 

Að auki verður skólum á háskóla- og fram­halds­skóla­stigi lokað yfir sama tíma­bil. Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sagði að tak­mark­anir yrðu settar í grunn- og leik­skólum.  Þær myndu fel­ast í því að börn yrðu í eins litlum hópum og kostur væri á. „Þetta er útfærsla sem við hrindum í fram­kvæmd strax eftir hádegi í sam­ráði við sveit­ar­fé­lögin,“ sagði Lilja.

„Samkomur þar sem 100 manns eða fleiri koma saman verða tak­mark­aðar í fjórar vikur  frá mið­nætti 15. mars“

Lögreglumenn verða ekki við stofnanir og verslanir

Á fund­inum var spurt um hvort þetta ætti við um lík­ams­rækt­ar­stöðvar og fleiri slíka staði og hvort talið yrði þar inn og hvernig það yrði fram­kvæmt. For­sæt­is­ráð­herra svar­aði því til að lög­reglu­menn yrðu ekki við allar stofn­anir og versl­anir. Treysta yrði almenn­ingi til að fylgja þessum til­mælum.

Á blaða­manna­fundiFor­sæt­is­ráð­herra sagði að lög­reglu­menn yrðu ekki við allar stofn­anir og versl­anir til að gæta þess að þar væru ekki fleiri en 100 manns. Treysta yrði almenn­ingi til að fylgja til­mælum.

Heil­brigð­is­ráð­herra sagði að heil­brigð­is­kerfið væri lík­lega vel und­ir­búið fyrir það sem framundan væri. Ekkert heil­brigð­is­kerfi í heim­inum réði við aðstæður ef allt færi á versta veg.

„Að lokum vil ég minna á að þessar aðgerðir miða að því að draga úr far­aldr­inum eins og kostur er,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. „ Við verndum inn­við­ina og verndum getu heil­brigð­is­kerf­is­ins til að takast á við þetta.“

„Þórólfur Guðnason: Þessar aðgerðir miða að því að draga úr far­aldr­inum eins og kostur er“

Samkvæmt vef­síðu Embættis land­læknis og almanna­varn­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, þar sem birtar eru upp­lýs­ingar um útbreiðslu Covid-19 veirunnar, eru nú 126 stað­fest smit hér á landi, 919 eru í sótt­kví og 126 í ein­angrun. 1.188 sýni hafa verið tekin.

Á fundi„Við erum á for­dæma­lausum tímum sem kalla á for­dæma­lausar aðgerðir,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra.

Langan veg frá því að ná yfirhöndinni

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­ala, segir í for­stjórapistli á vef­síðu spít­al­ans að sú far­sótt, sem nú sé glímt við, reyni á. „Við erum langan veg frá því að ná yfir­hönd­inni í bar­átt­unni við þennan vágest. Það mun hins vegar takast. Land­spít­ali gegnir sér­stöku og mik­il­vægu hlut­verki í því verk­efni að tryggja sem minnstan skaða vegna Covid-19 veik­innar. Það ræðst ann­ars vegar af þjón­ustu­hlut­verki okkar, þeirri stað­reynd að við höfum það starfs­fólk og þá aðstöðu sem grípa þarf til þegar allt þrýtur. Hins vegar þá er Land­spít­ali háskóla­sjúkra­hús lands­ins og okkar starfs­fólk þarf að beita þekk­ingu sinni og reynslu til að finna bestu leiðir til sig­urs,“ skrifar Páll.

„Skilj­an­lega er fólk áhyggju­fullt. Staðan er for­dæma­laus, nýjar upp­lýs­ingar ber­ast dag­lega og eng­inn getur haldið því fram að hafa öll svörin. Við þessar aðstæður þarf að sam­hæfa þá þekk­ingu sem fyrir liggur um veiruna, smit­leiðir, þá sem sýktir eru og ástand þeirra. Á sama tíma þarf að huga að getu sjúkra­húss­ins, tækjum, ein­angr­un­ar­að­stöðu og síð­ast en ekki síst vinnu­færni starfs­fólks á tímum sótt­kvíar og mögu­legrar sýk­ingar. Þetta kallar á hraða ákvarð­ana­töku.“

Fréttin hefur verið upp­færð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár