Mótmæla ákvörðun Bandaríkjastjórnar

Íslensk stjórn­völd hafa komið á fram­færi mót­mælum vegna ákvörð­unar Banda­ríkja­stjórnar að banna flug­ferðir frá flestum löndum Evrópu. Rík­is­stjórnin fundar í hádeg­inu í dag vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna Covid-19 veirunnar og banns Banda­ríkja­stjórnar. Í kjöl­farið fundar rík­is­stjórnin með for­mönnum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna.

Mótmæla ákvörðun Bandaríkjastjórnar
Mótmæla ferða­banni For­sæt­is­ráð­herra sagði á Alþingi í morgun að rík­is­stjórnin hefði mót­mælt ferða­banni til Banda­ríkj­anna. Mynd: Pressphotos

Íslensk stjórn­völd hafa komið á fram­færi mót­mælum vegna þeirrar ákvörð­unar Banda­ríkja­stjórnar að banna flug­ferðir frá flestum löndum Evrópu. Rík­is­stjórnin fundar í hádeg­inu í dag vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna Covid-19 veirunnar og þess­arra ákvörð­unar banns Banda­ríkja­stjórnar. Í kjöl­farið fundar rík­is­stjórnin með for­mönnum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna.

Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun. Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar sögðu mik­il­vægt að allir þing­menn hefðu jafnan aðgang að upp­lýs­ingum um stöðu mála.

Logi Ein­ars­son„Við erum öll í sama bátnum og það þarf allar hendur upp á dekk.“

Logi Ein­ars­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði að ekki mætti bíða eftir að „veru­leik­inn teikn­að­ist ein­hvern­veg­inn upp“. Hann sagði vel­ferð­ar­kerfið „í molum“ vegna hægri­stefnu í nokkur ár og að inn­viðir hefðu verið að grotna niður. Nú þyrfti að snúa þess­ari þróun við.  „Mun rík­is­stjórnin kalla stjórn­ar­and­stöð­ina og verka­lýðs­hreyf­ing­una til borðs­ins til að leita lausna? Við erum öll í sama bátnum og það þarf allar hendur á dekk,“ sagði Logi.

Staðan önnur en 2008

For­sæt­is­ráð­herra var til and­svara og sagði að rík­is­stjórnin myndi koma saman til fundar í hádeg­inu og í kjöl­farið funda með for­mönnum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Á morgun yrði fundað með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins. „Staðan er allt önnur en 2008,“ sagði Katrín. Gjald­eyr­is­forði væri öfl­ugur, skulda­hlut­fall lágt og við­skipta­jöfn­uður væri jákvæður. „Þær aðgerðir sem við kynntum eru aðeins þær fyrstu. Við verðum að tryggja að við komum stand­andi niður.“

„Þær aðgerðir sem við kynntum eru aðeins þær fyrstu. Við verðum að tryggja að við komum stand­andi niður“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir „Öllu máli skiptir að miðla upp­lýs­ingum fyrir heim­ilin og fyr­ir­tækin í land­inu.“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar, sagði að upp­lýs­inga­gjöf til stjórn­ar­and­stöð­unnar hefði ekki verið til fyr­ir­myndar og fagn­aði boð­uðum fundi með for­ystu­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar „Öllu máli skiptir að miðla upp­lýs­ingum fyrir heim­ilin og fyr­ir­tækin í land­inu,“ sagði Þor­gerður Katrín og lýsti yfir þungum áhyggjum af ákvörðun Banda­ríkja­stjórnar. 

Utanríkisnefnd komi saman við fyrsta tækifæri

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra svar­aði því til að íslensk stjórn­völd hefðu komið á fram­færi mót­mælum. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­ríkis- og þró­un­ar­mála­ráð­herra, hefði átt sam­tal við sendi­herra Banda­ríkj­anna í morgun, og í kjöl­farið fund með stað­gengli hans vegna máls­ins til þess að koma mót­mælum á fram­færi.

Katrín Jak­obs­dóttir „Tíðindi næt­ur­innar hafa sett þetta í nýtt sam­hengi.“

„Utan­rík­is­ráð­herra hefur óskað eftir fundi í utan­rík­is­mála­nefnd við fyrsta tæki­færi til að ræða þá stöðu sem upp er komin. Tíðindi næt­ur­innar hafa sett þetta í nýtt sam­hengi,“ sagði Katrín.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Utan­rík­is­ráðu­neyt­inu segir að Guð­laugur Þór hafi í þessum sam­tölum við banda­rísk stjórn­völd lagt á það ríka áherslu að Ísland verði und­an­þegið ákvæð­unum í ljósi land­fræði­legrar sér­stöðu sinnar og þeirra aðgerða sem íslensk stjórn­völd hafa gripið til til að hefta útbreiðslu Covid-19 hér á landi.

 

 

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár