„Maður er hálfbjargarlaus án sinna nánustu inni á svona stofnun“

Deild­ar­stjóri hjúkr­unar á Grens­ás­deild Land­spít­al­ans segir að álag hafi auk­ist veru­lega á starfs­fólk, nú þegar aðstand­enda nýtur ekki við. Aðstand­endur fólks sem glímir við alvar­legar afleið­ingar slysa eða veik­inda mega ekki koma í heim­sókn á deild­ina vegna hætt­unnar á útbreiðslu kór­óna­veirunnar.

„Maður er hálfbjargarlaus án sinna nánustu inni á svona stofnun“
Sigríður og Jóna Þeim ber saman um að lífið á Grensás sé flókn­ara án aðstand­end­anna.

Frá því á mánu­dags­morgun hefur eng­inn aðstand­andi sjúk­linga á Grens­ás­deild Land­spít­al­ans fengið að koma í heim­sókn, ef frá eru taldir örfáir aðstand­endur barna sem þar dvelja. Deild­inni var lokað til að stemma stigu við útbreiðslu kór­óna­veirunnar, líkt og á við um aðrar deildir Land­spít­al­ans og hjúkr­un­ar­heim­ili. „Þetta eru hræði­legar aðstæður og mjög íþyngj­andi fyrir alla,“ segir Sigríður Guð­munds­dóttir, deild­ar­stjóri hjúkr­unar á Grens­ás­deild, þar sem ein­stak­lingar dvelja sem hafa tapað færni, tíma­bundið eða var­an­lega, vegna slysa eða veik­inda. Hún segir lok­un­ina reyna á alla – sjúk­ling­ana, aðstand­endur þeirra og starfs­fólk.

„Þetta eru hræði­legar aðstæður og mjög íþyngj­andi fyrir alla“

Undir það tekur Jóna Elísabet Ottesen sem dvelur á Grensási vegna mænu­skaða sem hún hlaut eftir bílslys síð­ast­liðið sumar. Hún segir óvenjur­ó­legt á staðnum. Róin hafi verið nota­leg fyrst um sinn en sé nú að verða ein­mana­leg. „Það er skrýtið að geta ekki fengið Uglu, dóttur mína, og Inga, mann­inn minn, og alla hina í heim­sókn. En ég reyni að nota tím­ann öðru­vísi, lesa og hlusta á bækur, og heyri í þeim á messen­ger í stað­inn. Ég hugsa frekar um þá sem hafa það verra en ég og geta ekki fengið aðstand­endur í heim­sókn til sín.“

Hún seg­ist líka sjá enn betur nú en áður hvað aðstand­endur eru mik­il­vægir og hversu stórt hlut­verk þeir spila, vegna mann­eklu og lág­marks umönn­unar af hennar völdum. „Maður er hálf­bjarg­ar­laus án sinna nán­ustu inni á svona stofnun. En starfs­fólkið hér stendur sig með sóma við þessar aðstæður og auð­vitað finnst mér gott að það sé verið að bregð­ast við og passa upp á alla sjúk­linga með þessum hætti.“

Þetta segir Sigríður einmitt vera það erf­ið­asta við heim­sókn­ar­bannið. Aðstand­endur gegni gríð­ar­mik­il­vægu hlut­verki á deild­inni. „Ætt­ingjar eru svo ofsa­lega mik­il­vægir, sér­stak­lega þeir sem dvelja mikið hjá sínu fólki. Þeir eru stór­kost­legir og aðstoða okkur alla daga mikið, svo nú finnum við veru­lega fyrir því, þegar þeirra nýtur ekki við. Við erum með öðru­vísi hóp en aðrar deildir, því hér erum við með mikið af ungu fólki sem hefur fatl­ast af völdum slysa eða mjög alvar­legra veik­inda. Það er ekki bara að kljást við og glíma við lík­am­leg vanda­mál, reyna að kom­ast áfram og auka getu sína til að lifa eðli­legu lífi á ný, heldur er það oft ekki búið að sætta sig and­lega við fötlun sína. Það er því oft að glíma við and­lega erf­ið­leika sam­hliða þeim lík­am­legu, sem er erfitt án þeirra nán­ustu. Við starfs­fólkið reynum okkar besta en við getum aldrei komið í stað­inn fyrir fjöl­skyld­una. Þess vegna vinnum við alltaf þétt með fjöl­skyldum. Aðstæð­urnar nú reyn­ast því öllum erf­iðar.“ 

„Við starfs­fólkið reynum okkar besta en við getum aldrei komið í stað­inn fyrir fjöl­skyld­una“

Undaþága hefur verið gerð á heim­sókn­ar­bann­inu í til­viki barna, en þá er aðstand­endum gert að umgang­ast ekki aðra, fara helst beint heim til sín eftir heim­sókn á Grensás. „Við erum að setja mjög ströng skil­yrði á þessa örfáu sem fá að koma,“ segir hún. 

Sigríður seg­ist skilja skila­boð yfir­valda svo að lok­unin geti varað lengi. „Við búumst við að þetta ástand geti varað í langan tíma. Ég reikna jafn­vel með mörgum vikum,“ segir hún og bætir því við að flestir taki tak­mörk­un­unum vel. „Þetta er fyrst og fremst gert því fólk er hér í meiri hættu en heil­brigðir ein­stak­lingar. Flestir sýna því skiln­ing og fara eftir regl­unum en auð­vitað er einn og einn sem verður reiður. Við skiljum það líka vel. Þá kemur reiðin kannski fram vegna van­líð­unar og það eru eðli­leg við­brögð við óeðli­legu ástandi.“

Þegar þetta er skrifað hafa 90 manns ein­stak­lingar greinst með covid-19 kór­óna­veiruna og 700 eru í sótt­kví. Ekkert smit hefur komið upp á Grens­ás­deild. „Það hefur ekk­ert smit komið upp hér og eng­inn hefur farið í sótt­kví sem vinnur á Grensási. Það skiptir öllu máli að það komi ekki upp smit hér, svo við þraukum eins lengi og við þurfum.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár