Hundrað nýnasistar sagðir á leiðinni til Lesbos

Frönsk nýnas­ista­sam­tök hafa sent frá sér herkvaðn­ingu sem gengur um spjall­rásir nýnas­ista í Evrópu. Þar eru þeir hvattir til þess að fjöl­menna á grísku eyj­unni Lesbos til þess að herja á blaða­menn og sjálf­boða­liða. Þá full­yrða þeir að hund­rað hægri öfga­menn séu þegar á leið­inni, og að sumir þeirra hafi reynslu af hern­aði í Króatíu, Líbanon, Bosníu og Donbass.

Hundrað nýnasistar sagðir á leiðinni til Lesbos
Norræna mót­stöðu­hreyf­ingin Ekki kemur fram í umfjöllun Berliner Zeitung hvort með­limir Norrænu mót­stöðu­hreyf­ing­ar­innar séu á meðal þeirra sem stefni nú til Grikk­lands. Mynd: Expo

Um hund­rað ein­stak­lingar úr röðum hægri öfga­manna, víðs­vegar að úr Evrópu streyma nú til eyj­ar­innar Lesbos sem og ann­arra staða í Grikk­landi. Þeir kalla eftir fleirum til þess að taka þátt í bar­áttu sinni um „að verja Grikk­land fyrir íslömsku flótta­fólki“. Þetta kemur fram í umfjöllun Berliner Zeitung. Mark­miðið ku meðal ann­ars vera að herja á blaða­menn, hjálp­ar­starfs­menn og flótta­fólk á svæð­inu með ofbeldi og ógn­unum, en nú þegar hefur verið greint frá því að evr­ópskir hægri öfga­menn hafi komið sér fyrir á les­bos. Stundin hefur að und­an­förnu greint frá því hvernig þeir hafa síð­ustu daga og vikur ráð­ist gegn hjálp­ar­starfs­fólki, læknum, blaða­mönnum og flótta­fólki á eyj­unni. Þá hefur meðal ann­ars verið kveikt í flótta­manna­búðum og birgða­geymslum.

Sumir með reynslu af hernaði

Þýska blaðið Berliner Zeitung greindi frá því í gær að þýskir nýnas­istar og hægri öfga­menn ræði nú um það á spjall­rásum að fjöl­menna til Grikk­lands. Í dreifi­bréfi sem þeir dreifa á milli sín, og á upp­runa sinn hjá frönsku nýnas­ista­sam­tök­unum „sam­tökum um franska sjálfs­mynd“, kemur fram að að hund­rað franskir þjóð­ern­is­sinnar, þar á meðal fyrrum her­menn, séu nú þegar lagðir af stað til Grikk­lands. Bréfið er eins­konar herkvaðn­ing þar sem aðrir her­skáir hægri öfga­menn eru hvattir til þess að fjöl­menna til Grikk­lands til varnar Evrópu.

Þá kemur fram að sumir þeirra sem eru nú á leið­inni til lands­ins, hafi hlotið her­þjálfun og reynslu af hern­aði sem mála­liðar í Króatíu, Líbanon, Bosníu og Donbass. Áfanga­stað­irnir eru sagðir á eyj­unum Lesbos og Chios, en líka í Aþena og á tyrk­nesku landa­mær­unum á meg­in­land­inu. Meg­in­mark­mið nýnas­istan­anna er að „afgreiða“ blaða­menn og sjálf­boða­liða sem aðstoða flótta­fólk, eins og þeir kom­ast að orði. Þá fyr­ir­huga þeir að taka ljós­myndir, mynd­bönd og fram­leiða efni til dreif­ingar á sam­fé­lags­miðla. 

Meðlimur þýska þjóðernisflokksins á svæðinu

Berliner Zeitung segir ómögu­legt að áætla hversu margir hægri öfga­menn frá Vestur-Evrópu séu þegar komnir til Lesbos og að landa­mærum Tyrk­lands. Í mynd­bandi af átökum sem brut­ust út við höfn­ina á Mytilini á Lesbos síð­ast­lið­inn föstu­dag, og hefur fengið dreif­ingu á inter­net­inu, má meðal ann­ars sjá þýska stjórn­mála­mann­inn, Jonathan Stumpf, með­lim þýska þjóð­ern­is­flokks­ins, sem og Mario Müller hjá sam­tökum um franska sjálfs­mynd. Blaðið hefur ekki fengið upp­lýs­ingar um það hvað þeir hafi verið að gera á eyj­unni.

Der Spiegel hefur greint frá ítrek­uðum árásum hægri öfga­manna á eyj­unni Lesbos að und­an­förnu. Þannig er því meðal ann­ars lýst hvernig hægri öfga­menn komu saman þar sem sam­fé­lags­mið­stöð fyrir flótt­fólk hafði verið brennd til grunna. Mið­stöðin til­heyrði sviss­nesku sam­tök­unum „One Happy Family“. Nýnas­istar sögðu að það hefði veirð kveikt í henni þar sem sam­tökin hefðu verið að stuðla að því að flytja ólög­lega inn­flytj­endur til Grikk­lands.

Börnin ekki send til Grikklands

Grikkir hafa þegar tekið við 115 þús­und flótta­mönnum. Flótta­manna­búðir eru yfir­fullar og aðstæður fólks­ins hrylli­legar og önnur evr­ópu­ríki hafa heitið því að létta birð­inni með því að taka við fólki þaðan, enda hæl­is­kerfið nú þegar löngu orðið yfir­fullt. Þannig hafa Portú­galir, Frakkar og Finnar meðal ann­ars heitið því að taka við fólki frá land­inu til þess að létta undir með Grikkjum. Þá lýstu Þjóð­verjar því yfir í fyrra­dag að þeir myndu taka við 1.500 manns frá Grikk­landi. Á sama tíma fyr­ir­hug­uðu íslensk stjórn­völd að senda fimm barna­fjöl­skyldur til land­ins.

Sema Erla Serdar, stofn­andi hjálp­ar­sam­tak­anna Solaris, greindi frá því í gær að búið væri að fresta brott­vísun ungu flótta­barn­anna Ali, Kayan, Saja og Jadin og ungra for­eldra þeirra frá Írak til Grikk­lands um óákveð­inn tíma. „Sú skýr­ing sem gefin er á því er að brott­vís­unin strandar á grískum stjórn­völdum sem segj­ast ekki geta tekið á móti þeim vegna aðstæðna þar!“ Upp­lýs­inga­full­trúi Útlend­inga­stofn­unar segir hins­vegar ekki rétt að grísk stjórn­völd hafni því að taka við ein­stak­lingum sem hafi fengið alþjóð­lega vernd þar í landi. Brott­vísun fjöl­skyldu og ein­stak­lings til Grikk­lands sé enn í bígerð, þó að henni hafi verið frestað aftur.

Aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi hafa lengi verið bág­bornar og fjöldi alþjóð­stofn­ana og sam­taka á borð við UNICEF og Rauða kross­inn ítrekað for­dæmt brott­vís­anir á börnum þangað. „Það er ekki með nokkru móti hægt að rétt­læta brott­vís­anir á börnum til Grikk­lands,“ sagði Rauði kross­inn á Íslandi í til­kynn­ingu sem sam­tökin sendu frá sér þann 4. mars síð­ast­lið­inn til þess að mót­mæla umræddum brott­vís­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár