Útgerð á Eskifirði með tæpan milljarð á ári frá ríkinu fyrir að „gera ekki handtak“

Benedikt Jóhann­es­son segir að hægt hefði verið að byggja fimm Land­spít­ala á ára­tug fyrir „óhóf­legan hagnað“ útgerð­ar­innar. VG beiti sér fyrir lækkun auð­linda­gjalda og hagn­aður safn­ist á hendur fárra.

Útgerð á Eskifirði með tæpan milljarð á ári frá ríkinu fyrir að „gera ekki handtak“
Benedikt Jóhann­es­son Fjár­mála­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi segir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki fá gjöf frá rík­inu fyrir að gera ekki neitt. Mynd: Pressphotos

Benedikt Jóhann­es­son, stofn­andi Við­reisnar og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra segir Vinstri græn styðja kvóta­kerfi sem safnar eignum og auði á hendur fárra eins og sam­starfs­flokk­ana í rík­is­stjórn, Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk. Hann segir útgerð­ina hagn­ast óhóf­lega og hagn­að­inn hverfa úr heima­byggðum þeirra.

„Hagnaður útgerð­ar­innar á einum ára­tug eftir hrun er 447.500.000.000 krónur,“ skrifar hann í grein í Morg­un­blað­inu í dag sem ber tit­il­inn „Vinstri græn og millj­arða­mær­ing­arnir“. „Það er heppi­leg tala fyrir útgerð­ar­menn. Bæði er hagn­að­ur­inn mjög góður og talan er líka svo há að fólk á erfitt með að skilja hana. Setjum fjár­hæð­ina því í sam­hengi. Fyrir 447 millj­arða væri hægt að reisa fjóra til fimm nýja Land­spít­ala.“

Benedikt segir stjórn­völd taka þátt í að fela það að nytja­stofnar á Íslands­miðum séu sam­eign þjóð­ar­innar að lögum. „Kannski er ósann­gjarnt að horfa á margra ára gróða. Skoðum því hagn­að­inn á dag. Hann var ekki nema 122.569.159 krónur eða tæp­lega 123 millj­ónir króna hvern ein­asta dag. Fyrir þá fjár­hæð mætti kaupa dágott ein­býl­is­hús. Þau væru þá orðin 3.651 á ára­tug. Það væri líka hægt að ráða 10 þús­und manns á lág­marks­launum allt tíma­bilið fyrir þessa fjár­hæð,“ skrifar hann.

Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­annaBenedikt segir VG hafa geng­ist undir stefnu Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks í sjáv­ar­út­vegs­málum.

„Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir, með VG í far­ar­broddi, hafa beitt sér fyrir því að lækka auð­linda­gjöld útgerð­ar­innar. Enginn stjórn­ar­flokk­anna má heyra á það minnst að nýttir verði kostir frjálsrar sam­keppni með því að mark­aðstengja gjaldið. Hagnaður er góður þegar hann mynd­ast af dugn­aði og hug­viti. Hagnaður vegna gjafa frá stjórn­völdum er mein á þjóð­ar­lík­am­anum.“

700 til 950 milljónir fyrir að leigja út kvóta

Benedikt bendir á að kvóta­staða fyr­ir­tæk­is­ins Eskju á Eski­firði sé 4.240 tonn miðað við þorskígildi. „Merki­leg­ast við þann kvóta er: 1. Eskja á engan bát sem veiðir bol­fisk­inn, 2. Eskja á enga fisk­vinnslu sem vinnur bol­fisk­inn. Fyr­ir­tækið miðlar því þessum kvóta sem það fær frá rík­inu til ann­arra. Hann er leigður „út um allt“ og skapar „ansi góðar leigu­tekjur fyrir Eskju“, eða 700 til 950 millj­ónir á ári. Það er mynd­ar­leg gjöf frá rík­is­stjórn­inni fyrir að gera ekki hand­tak,“ skrifar hann.

„Það er mynd­ar­leg gjöf frá rík­is­stjórn­inni fyrir að gera ekki hand­tak“

Hann segir jafn­framt að útgerð­irnar nýti ekki þennan hagnað til upp­bygg­ingar í heima­byggð, heldur renni hann að mestu til fjár­fest­inga í Reykja­vík eða erlendis. „Til dæmis í fjöl­miðla­rekstur [sem tekur lengi við], trygg­inga­fé­lög, sam­göngu­fyr­ir­tæki, brauð­gerð, heild­sölu, atvinnu­hús­næði, kex­verk­smiðju og afla­brest á prent­mark­aði. Að ógleymdum ævin­týrum sem hafa borið hróður Íslands um fjar­læg lönd. Allir vita að Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­flokkur styðja kerfi sem safnar eignum og auði á hendur fárra. Hvenær varð það grunn­stefna VG? Við höfum ein­falda lausn. Notum mark­að­inn! Allt sem þarf er vilji til að nýta afrakst­ur­inn í þágu þjóð­ar­innar. Ekki bara örfárra auð­kýf­inga.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár