Lögreglan segir sölu CBD olíu löglega á Íslandi

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir efni unnið úr kanna­bis­plöntum heim­ilt til sölu á Íslandi að upp­fylltum skil­yrðum. Tillaga liggur fyrir Alþingi um að almenna heim­ila sölu þess.

Lögreglan segir sölu CBD olíu löglega á Íslandi
Kannabis CBD og THC eru kölluð virku efnin í kanna­bis­plönt­unni, en CBD er þó ekki vímu­gjafi.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu telur CBD olíu lög­lega á Íslandi. Þetta kemur fram í sam­skiptum emb­ætt­is­ins við með­lim CBD sam­tak­anna á Facebook, þar sem spurt var hvort sala á CBD olíu (cannabidiol), sem unnin er úr plöntum af kanna­bisætt­inni, sé lög­leg.

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, lagði ásamt fleiri þing­mönnum fram til­lögu í haust þess efnis að gera sölu á vörum sem inni­halda CBD heim­ila í almennri sölu. Áhöld hafa verið um lög­mæti efn­is­ins, en lyfja­stofnun hefur veitt heim­ild fyrir einni vöru sem inni­heldur það. CBD er ekki vímu­gjafi, ólíkt efn­inu THC sem einnig má finna í kanna­bis­plöntum.

Aðspurð um hvort sala CBD olíu sé lög­leg á Íslandi, svar­aði lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­tök­unum að svo væri. „Það er ekki nema von að þú spyrjir,“ segir í svari emb­ætt­is­ins. „Það er ekki langt síðan að okkar fólk lagð­ist í þá vinnu að skoða og greina mál­efni sem varða CBD olíu í vörum sem eru til í almennri sölu. Án þess að fara í laga­legu flækj­una á bak við þá nið­ur­stöðu þá er svarið já.“

Á vef Lyfja­stofn­unar kemur fram að flytja megi CBD olíur til lands­ins, svo fram­ar­lega sem kvittun og ávísun læknis er fram­vísað. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lítur því efnið ekki sömu augum og til dæmis fíkni­efni. „Meðal þeirra atriða sem styðja þá nið­ur­stöðu er að CBD er ekki á bann­lista reglu­gerðar nr. 233/2001 um ávana-fíkni­efni og önnur eft­ir­lits­skyld efni,“ segir í svari lög­regl­unnar.

Sam­skipti CBD sam­tak­anna og lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inuEmbættið lagð­ist í vinnu við að skoða lög­mæti sölu CBD olíu.

Í sam­skiptum við Stundina stað­festir lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að þetta hafi verið svarið sem emb­ættið gaf. „Hér er þó ekki öll sagan sögð, en þótt að CBD sé almennt ekki undir eft­ir­liti lög­reglu þá getur það verið álitið lyf og því ekki lög­legt til sölu nema að fengnu lyf­sölu­leyfi,“ segir í svari emb­ætt­is­ins. „Að sama skapi getur það flokk­ast sem fæðu­bót­ar­efni og því þurft að upp­fylla slíkar reglur. Þetta er því frekar flókið mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár