Auglýstu slagsmál tveggja stúlkna á Instagram

Tugir barna og ung­menna víðs vegar að af höf­uð­borg­ar­svæð­inu, allt niður í 12 ára, söfn­uð­ust saman á skóla­lóð í Graf­ar­vogi skömmu fyrir jól til að fylgj­ast með slags­málum tveggja ung­lings­stúlkna. Ofbeldið var aug­lýst á Instagram.

Auglýstu slagsmál tveggja stúlkna á Instagram
Slagsmál Skjáskot af mynd sem tekin var af slags­málum tveggja stúlkna á skóla­lóð í Graf­ar­vogi. Slags­málin voru aug­lýst á sam­fé­lags­miðlum, meðal ann­ars á síðum með nöfn á borð við slagur.is og Slagsmál Ísland á Instagram.

Á milli 70 og 100 börn og ung­lingar söfn­uð­ust saman á lóð grunn­skóla í Graf­ar­vogi í nóv­em­ber síð­ast­liðnum til að fylgj­ast með slags­málum tveggja ung­lings­stúlkna. Ofbeldið hafði verið aug­lýst á sam­fé­lags­miðlum og komu börnin víðs vegar að af höf­uð­borg­ar­svæð­inu, mörg með strætó

Að sögn for­eldris í hverf­inu vildu stjórn­endur við­kom­andi skóla lítið skipta sér af mál­inu því það hefði átt sér stað utan skóla­tíma. For­eldrið, sem ekki treystir sér til að koma fram undir nafni vegna ótta við að hefnd­ar­að­gerðir ung­ling­anna gætu bitnað á fjöl­skyld­unni, segir að lög­reglu hafi verið gert við­vart þegar vart varð við að fjöldi ung­linga hafði safn­ast saman við skól­ann um átta leytið að kvöldi. „Lög­reglan kom á stað­inn og þá fóru krakk­arnir í burtu. En um leið og lög­reglan fór, þá komu þau aftur.“

Auglýst á Instagram

Ung­ling­arnir og börnin voru þarna til að fylgj­ast með slags­málum tveggja stúlkna í efstu bekkjum grunn­skóla sem hugð­ust gera upp ágrein­ing sín á milli á þennan hátt. Slags­málin voru aug­lýst á sam­fé­lags­miðlum, meðal ann­ars á slags­mála­síðum með nöfn á borð við slagur.is og Slagsmál Ísland á Instagram. 

„Ein­hverjir strák­anna hót­uðu mér og köll­uðu mig öllum illum nöfnum fyrir að skilja þær“

„Kona, sem býr nálægt skól­anum sá þetta út um glugg­ann hjá sér,“ segir for­eldrið.  „Hún hélt fyrst að það væri ein­hver sam­koma fyrir krakk­ana í skól­anum, en sá fljótt að þarna var eitt­hvað annað um að vera. Í Facebook-færslu sem hún deildi í sam­fé­lags­miðla­hópi for­eldra í hverf­inu skrif­aði hún að hún vildi að for­eldrar í hverf­inu vissu að rétt í þessu hefðu skipu­lögð slags­mál verið á lóð skól­ans í hverf­inu.“ 

Logandi flugeldar á flugi og allt brjálað 

„Ég sá stóran hóp af krökkum í stórum hring og ég fór til að sjá hvað var um að vera. Þarna voru tvær stúllkur í miðju hrings­ins í hörðum slags­málum og ég skildi þær að. Ein­hverjir strák­anna hót­uðu mér og köll­uðu mig öllum illum nöfnum fyrir að skilja þær að og skemma þannig skemmt­un­ina fyrir hópnum,“  skrif­aði sjón­ar­vott­ur­inn í Facebook-færsl­unni. „Ég hringdi á lög­regl­una. Það var allt brjálað þarna, krakkar hlaup­andi út um allt, það var verið að fleygja log­andi flug­eldum. Flestir voru að taka atvikið upp á sím­ana sína. Þarna voru krakkar niður í 12 ára sam­an­komnir til að horfa á alvar­legt ofbeldi, margir höfðu komið með strætó.“ 

Foreldrar hótuðu að kæra birtingu myndbands 

Við­mæl­andi Stund­ar­innar segir að upp­taka af slags­mál­unum hafi verið sett á sam­fé­lags­miðla­hóp for­eldra í hverf­inu í von um að ein­hverjir for­eldr­anna myndu þar þekkja börn sín og gætu þá tekið á þessu athæfi. Það hefði lít­inn árangur borið, við­brögð margra for­eldra hafi verið þau að birt­ing mynd­bands­ins bryti í bága við per­sónu­vernd­ar­lög, hót­uðu að kæra birt­ing­una og það var tekið af síð­unni.

„Þarna voru krakkar niður í 12 ára sam­an­komnir til að horfa á alvar­legt ofbeldi, margir höfðu komið með strætó“ 

„Ég til­kynnti þessar síður til Instagram sem tók þær niður vegna birt­ingar óvið­eig­andi efnis. En það spretta þá bara upp nýjar síður með svip­uðum nöfnum,“ segir for­eldrið. „Við verðum að vera meira með­vituð um hvað börnin okkar eru að gera á netimu og hvaða hópum þau eru í á sam­fé­lags­miðlum. Í hópum eins og þessum er verið að veg­sama ofbeld­is­menn­ingu, það getur ekki verið að það sé það sem við viljum.“

Að sögn for­eldr­is­ins var lög­reglu til­kynnt um atvikið. „En eftir því sem ég best veit, þá hafði þetta engar afleið­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár