Var ofsóttur á samfélagsmiðlum og beittur ofbeldi

„Strákar í hverf­inu réð­ust á hann og skip­uðu honum að kyssa á skóna þeirra. Hann gerði það, þeir tóku það upp á sím­ana sína og dreifðu því út um allt,“ segir móðir fimmtán ára drengs sem var ofsóttur á sam­fé­lags­miðlum. Öll fjöl­skyldan þurfti að þola hót­anir og áreiti og ráð­ist var á bróður hans.

Var ofsóttur á samfélagsmiðlum og beittur ofbeldi
Þú ert ennþá meira dauður Dreng­ur­inn fékk urmul skila­boða og hót­ana í gegnum sam­fé­lags­miðla. Bar­smíðar á honum voru boð­aðar á slags­mála­síðum og -hópum á net­inu. Hót­an­irnar voru ýmist frá ung­lingum sem hann þekkti eða þekkti ekki neitt, þær komu alls staðar að af höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víðar af land­inu.

Mynd­skeið sem sýndi árás ung­linga á jafn­aldra sinn, fimmtán ára gamlan dreng í Reykja­vík, þar sem hann var einnig nið­ur­lægður, var dreift á svoköll­uðum slags­mála­síðum á Instagram. Móðir drengs­ins hvetur for­eldra til að fylgj­ast með þeim hópum sem börnin þeirra eru í á sam­fé­lags­miðlum; ein­elti og ofbeldi fari að miklu leyti fram á net­inu. Hún segir að á síðum sem þessum sé hægt að senda beiðni um að börn séu barin og svo séu birt mynd­bönd af því að verkn­að­inum loknum.

„Strákar í hverf­inu réð­ust á hann og skip­uðu honum að kyssa á skóna þeirra. Hann gerði það, þeir tóku það upp á sím­ana sína og dreifðu því út um allt. Þeir sögð­ust vera að refsa honum fyrir að hafa áreitt stelpu, sem hann hafði aldrei hitt, á kyn­ferð­is­legan hátt.“ 

Þannig hófst margra mán­aða martröð fjöl­skyldu í Reykja­vík.  Móðirin, sem ekki vill láta nafns síns getið af til­lit­semi við son sinn segir að eitt gott hafi komið út úr þess­ari lífs­reynslu; fjöl­skyldan hafi orðið nán­ari.

Hótað lífláti og barsmíðum

Í kjöl­farið tóku við hót­anir á sam­fé­lags­miðlum, þar sem drengnum var hótað ýmis konar ofbeldi. Bar­smíðar á honum voru boð­aðar á slags­mála­síðum og -hópum á net­inu. Hót­an­irnar voru ýmist frá ung­lingum sem hann þekkti eða þekkti ekki neitt, þær komu alls staðar að af höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víðar af land­inu og honum var hótað líf­láti ef hann stigi fæti sínum í til­tekin hverfi. 

Móðirin vissi hverjir stóðu að baki áreit­inu og taldi í byrjun að það myndi bera bestan árangur ef hún myndi ræða þetta í róleg­heitum við for­eldra helsta for­sprakk­ans. „Hann lof­aði öllu fögru, en safn­aði síðan liði vina sinna úr öðrum hverfum og þeir biðu sonar míns fyrir utan skól­ann.“

For­eldr­arnir létu dreng­inn hætta á öllum sam­fé­lags­miðlum í von um að hót­an­irnar myndu þá ekki ná til hans. Þá hófust sím­hring­ingar dag og nótt bæði í síma for­eldr­anna og í heim­il­is­sím­ann þar sem fjöl­skyld­unni var hótað. „Hann fór ekk­ert einn út nema  í skól­ann og heim aftur. Ég fór stundum með hann út í búð og þar varð hann fyrir aðkasti og hót­unum og það sama gerð­ist í Kringl­unni og Smára­lind. Við gátum ekk­ert farið.“

Fór ekki út úr húsi en var sagður hafa áreitt stúlkur

„Síðan fóru að bæt­ast við fleiri stelpur víða að af land­inu sem hann átti að hafa áreitt og það átti að hafa gerst á þeim tíma þegar hann fór ekk­ert út af heim­il­inu. Hann þekkti fæstar þeirra og ég held að á end­anum hafi þær verið orðnar 15,“ segir móð­irin. Hún segir að hún hafi hvatt stúlk­urnar til að leita til lög­regl­unnar með ásak­anir sínar. „Tvær þeirra gerðu það. Málið var rann­sakað og síðan fellt niður, meðal ann­ars vegna þess að ásak­an­irnar breytt­ust sífellt, þær urðu væg­ari og væg­ari.“

Þið vitið hvað á að gera við perraMynd af drengnum með ásök­unum um kyn­ferð­is­brot var dreift á sam­fé­lags­miðlum.

For­eldr­arnir gerðu aðra til­raun til að ræða við for­eldra ger­end­anna. „Viðbrögð sumra voru að þetta væri ímyndun í okkur; börnin þeirra hefðu ekki gert neitt. Við sýndum þeim skila­boð sem börnin þeirra höfðu sent syni okkar, en það breytti engu. Aðrir sögðu að þeir réðu bara ekk­ert við börnin sín og að við yrðum bara að láta þetta yfir okkur ganga. Við höfðum þá sam­band við lög­regl­una. Fyrstu við­brögðin voru að þetta væri mjög alvar­legt mál og að það yrði brugð­ist við. En eftir því sem við höfðum oftar sam­band og sendum fleiri skila­boð og skjá­skot urðu við­brögðin minni og minni. Ég veit reyndar að lög­regla tal­aði við einn af ger­end­unum sem sagð­ist ætla að hætta þessu, en stóð ekki við það.“

Bara pjakkar með stæla

For­eldr­arnir leit­uðu til barna­vernd­ar­nefndar, en fengu þar þau svör að málið væri ekki nægi­lega alvar­legt til þess að grípa þyrfti inn í. „Þetta eru bara pjakkar með stæla, voru svörin sem við fengum.“

„Viðbrögð sumra voru að þetta væri ímyndun í okkur. Við sýndum þeim skila­boð sem börnin þeirra höfðu sent syni okkar, það breytti engu“

Móðirin segir að starfs­menn skóla drengs­ins hafi framan af ekki lagt trúnað á sögu for­eldr­anna þrátt fyrir að þeir hafi sýnt þeim mörg ljót skila­boð sem hann fékk frá skóla­fé­lögum sínum. „Það var ekki fyrr en allir krakk­arnir í hans árgangi fóru á tækni­há­tíð niðri í bæ, sem nem­endur úr fleiri skólum fóru líka á, að kenn­ar­arnir sáu með eigin augum hvað var í gangi. Þar höfðu krakkar stillt sér upp við alla útganga úr hús­inu til að ná honum þegar hann kæmi út og berja hann. Þetta hafði verið aug­lýst á ofbeld­is­síðum á Instagram.“

Var ekki trúaðMóðirin segir að starfs­menn skóla drengs­ins hafi framan af ekki lagt trúnað á sögu for­eldr­anna þrátt fyrir að þeir hafi sýnt þeim mörg ljót skila­boð sem hann fékk frá skóla­fé­lögum sínum.

 Í kjöl­far þessa ákvað skóla­stjór­inn að til­kynna málið til við­kom­andi barna­vernd­ar­nefndar og þar fékk dreng­ur­inn nokkra sér­fræði­að­stoð. En lítið var gert til að stöðva hegðun þeirra sem ofsóttu hann. „Ég veit til þess að skól­inn ræddi einu sinni við for­eldra ger­end­anna, en það bar engan árangur. Ég veit ekki til þess að meira hafi verið reynt,“ segir móð­irin.

„Þar höfðu krakkar stillt sér upp við alla útganga úr hús­inu til að ná honum þegar hann kæmi út og berja hann“

Að sögn móð­ur­innar ótt­að­ist fjöl­skyldan veru­lega um hag sinn meðan á þessu stóð. Myndir voru teknar af Facebook-síðum for­eldr­anna sem sýndu þau og yngri systk­ini drengs­ins og þeim var dreift á sam­fé­lags­miðlum með áskor­unum um að gera þeim mein. Hópur ung­linga í Hafn­ar­firði  réðst á eldri bróður hans með hnífum í Hafn­ar­firði og eitt skipti fengu þau til­kynn­ingu um að þau ættu von á heim­sókn þekkts hand­rukk­ara.

Við hefðum viljað vera tekin alvarlega

Spurð hvaða við­brögð hún hefði viljað fá frá skól­anum, lög­reglu og  barna­vernd­ar­yf­ir­völdum svarar móð­irin: „Að við hefðum verið tekin alvar­lega. Allir vís­uðu hver á annan eða sögðu að þetta væri ekki alvar­legt. Við leit­uðum líka til skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, þar sem ger­end­urnir voru úr mörgum skólum. Skóla­stjórar þess­ara skóla voru ekki til­búnir til að vinna saman til að leita lausna á mál­inu, en full­trúi skóla- og frí­stunda­sviðs fór í skól­ana og ræddi við þá.“

Smám saman fjar­aði áreitið út og eftir um sex mán­uði var dreng­ur­inn að mestu óáreittur. Spurð hvernig honum líði í dag segir móð­irin að hann hafi alla tíð getað haldið í þá hugsun að hann ætti ekki skilið að líða slíka fram­komu. „Ég er stolt af honum fyrir að hafa getað gengið í gegnum þetta og að hafa borið höf­uðið hátt allan tím­ann.“

Segir ofbeldisgengi fara á milli skóla

Slags­mála­hóparÁ Instagram eru fjöl­margir hópar þar sem setja má inn beiðnir um bar­smíðar og mynd­skeið af ofbeldi.

Móðirin segir fyllstu ástæðu til að hafa áhyggjur af því ofbeldi sem þrífst meðal ung­linga. „Ég fékk sjokk þegar ég sá í fréttum núna í vik­unni þar sem verið var að mis­þyrma ung­lings­dreng. Ég hef heyrt um svo mörg svona til­vik þar sem verið er að taka upp ofbeldi barna gegn börnum og að það sé verið að dreifa þessu efni og aug­lýsa slags­mál og árásir á sam­fé­lags­miðlum. Ég veit að margoft var hvatt til að ráð­ast á son minn á slíkum síðum, ef hann hefði ekki alltaf verið heima þá hefði hann lík­lega orðið fyrir gríð­ar­legu ofbeldi. Ég veit til þess að gengi fara á milli skóla til að berja krakka þar, en passa sig á því að gera það ekki í sínum eigin skóla því. Þannig sleppa þau við afleið­ing­arnar.“

Hún segir ábyrgð­ina vera for­eldr­anna. „Ég hvet for­eldra til að taka ábyrgð á börn­unum sínum og fylgj­ast með þeim hópum sem þau eru í á sam­fé­lags­miðlum. Og að taka það alvar­lega þegar aðrir for­eldrar koma að málli við þig og segja þér að barnið þitt komi illa fram. Ef þú átt 15 ára gam­alt barn, sem er að eyði­leggja líf ann­ars barns, þá biður þú um aðstoð. Það er skylda þín sem for­eldris.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár