Sjávarútvegsráðherra hefur litlar skoðanir á máli sem er pólitískt stórmál í Noregi

Í fyrsta skipti er slát­ur­skip notað í íslensku lax­eldi. Umræða og gagn­rýni á notkun slíkra skipa í Noregi hefur verið tals­verð. Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hefur ekki áhyggjur af því að notkun slíkra skipa geti haft áhrif á myndun starfa í lax­eldi á Íslandi.

Sjávarútvegsráðherra hefur litlar skoðanir á máli sem er pólitískt stórmál í Noregi
Tíð notkun slát­ur­skipa getur haft áhrif á störf Ef notkun slát­ur­skipa í íslensku lax­eldi verður tíð getur það haft áhrif á myndun starfa í grein­inni en þetta er ein helstu rök tals­manna lax­eldis fyrir auknu eldi á Íslandi. Kristján Þór Júl­í­us­son er sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Mynd: Pressphotos.biz - (GeiriX)

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, Kristján Þór Júl­í­us­son, hefur ekki miklar skoð­anir eða áhyggjur af notkun á sér­stökum slát­ur­bátum í lax­eldi á Íslandi. Þetta kemur fram í svörum frá ráð­herr­anum í gegnum upp­lýs­inga­full­trúa sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­is­ins. Notkun á slát­ur­bátum hefur vakið miklar umræður í lax­eldi í Noregi, sem sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins, Harald T. Nesvik, hefur meðal ann­ars verið virkur þátt­tak­andi í. 

Í fyrsta skipti í sögu íslensks lax­eldis er slíkur slát­ur­bátur, The Norwegian Gannet, staddur hér á landi til að slátra eld­is­laxi upp úr sjó­kvíum eins og Stundin hefur greint frá. The Norwegian Gannet er nú not­aður í fáheyrðum aðstæðum til að slátra eld­is­laxi upp úr sjó­kvíum Arnarlax í Arn­ar­firði þar sem slæmt veður liðnar vikur hefur valdið því að á milli 600 og 1.000 tonn af eld­is­laxi hafa drep­ist í eld­iskvíum fyr­ir­tæk­is­ins. Eigandi The …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár