Spyr hvort ríkið hætti við aðgerðir vegna verkfalla Eflingar

Þor­steinn Víglunds­son spyr hvort rík­is­stjórnin ætli að hætta við aðgerðir á borð við leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs og hækkun barna­bóta vegna verk­falls­að­gerða Eflingar.

Spyr hvort ríkið hætti við aðgerðir vegna verkfalla Eflingar
Þor­steinn Víglunds­son Þing­mað­ur­inn sagði mark­mið kjara­samn­inga síð­asta árs brotin með verk­falls­að­gerðum Eflingar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, segir stefna í að verka­lýðs­fé­lögin muni brjóta for­sendur Lífs­kjara­samn­ings­ins sem sam­þykktur var í fyrra og veltir því upp hvort rík­is­stjórnin hygg­ist hætta að við þær aðgerðir sem boð­aðar voru sam­hliða honum.

Spurn­ing­unni velti Þor­steinn upp við Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Vísaði hann til kjara­deilu Eflingar við Reykja­vík­ur­borg og þeirra krafna sem eru uppi um hækkun launa leik­skóla­kenn­ara og ann­arra starfs­manna borg­ar­innar.

Þor­steinn sagði óveð­urs­ský yfir efna­hags­líf­inu, 6 til 8 þús­und störf hafi tap­ast und­an­farið ár og fyr­ir­tæki standi frammi fyrir því að þurfa að segja upp fólki vegna launa­hækk­ana sem sam­þykktar voru í Lífs­kjara­samn­ingnum í fyrra.

„Sérkennilegt“ að sjá verkfallið

„Það er þess vegna athygl­is­vert að fylgj­ast með þeirri kjara­deilu sem er á opin­bera vinnu­mark­aðnum núna þar sem þeirri launa­stefnu sem mörkuð var í Lífs­kjara­samn­ingnum virð­ist kerf­is­bundið hafa verið hafnað,“ sagði Þor­steinn. „Og kannski enn athygl­is­verð­ara að henni er hafnað af verka­lýðs­fé­lögum sem stóðu að Lífs­kjara­samn­ingnum á sínum tíma.“

Þá undr­ast Þor­steinn aðgerðir Eflingar.  „Það er auð­vitað mjög sér­kenni­legt að horfa upp á þá stöðu skap­ast hér enn eina ferð­ina, að hér var gengið til kjara­samn­inga fyrir ári síðan, með skýrum for­sendum, þar sem stefnt skyldi að auknum efna­hags­legum stöð­ug­leika, og það liggur alveg ljóst fyrir í þeirri stöðu sem efna­hags­lífið er í dag, að launa­hækk­anir umfram þá kjara­samn­inga sem þegar hafa verið gerðir, myndu leiða til meira atvinnu­leysis en ella. Þeim við­kvæma stöð­ug­leika sem þó er erfitt að færa rök fyrir að ríki lengur, en það er alla­vega alveg ljóst að við myndum detta í hefð­bundið höfr­unga­hlaup ef for­sendur lífs­kjara­samn­ings­ins verða brotnar í kjara­við­ræðum hins opin­bera. Þess vegna skýtur mjög skökku við, hvernig getur það stað­ist að stétt­ar­fé­lög sem lögðu hér upp með kjara­samn­ing fyrir ári síðan, með stöð­ug­leik­ann að grund­velli, með skýra kröfu til stjórn­valda um umfangs­mikla aðkomu, að þeim kjara­samn­ingum, geti svo með verk­falls­að­gerðum reynt að brjóta mark­mið samn­ings­ins á bak aftur án þess að það hafi áhrif á aðkomu stjórn­valda að þeim sama kjara­samn­ingi? Og þess vegna spyr ég enn og aftur, er sú staða uppi að for­sendur fyrir aðkomu stjórn­valda að lífs­kjara­samn­ingnum gætu brostið, með þeirri kjara­deilu sem nú er uppi á opin­bera vinnu­mark­aðnum?“

80 milljarða aðgerðir

Við sam­þykkt Lífs­kjara­samn­ing­ins í fyrra til­kynnti rík­is­stjórnin um 45 aðgerðir til stuðn­ings samn­ingnum. Á meðal þeirra var leng­ing fæð­ing­ar­or­lofs, breyt­ingar á tekju­skatti, aðgerðir í hús­næð­is­málum, hækkun barna­bóta og hæg­ari hækkun gjald­skráa ríkis og sveit­ar­fé­laga. Var áætlað að kostn­aður við aðgerð­irnar næmi 80 millj­örðum króna.

Þor­steinn sagði að kjara­deil­urnar minntu á gömul vinnu­brögð og að launa­hækk­anir umfram Lífs­kjara­samn­ing­inn myndu leiða til hærra atvinnu­leysis en ella. Hann spurði hvort verka­lýðs­fé­lögin gætu brotið mark­mið samn­ings­ins á bak aftur með verk­falls­að­gerðum, án þess að það hefði áhrif á þá aðkomu stjórn­valda. „Nei, stjórn­völd munu standa við þær aðgerðir sem við boð­uðum,“ svar­aði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjarasamningar 2019

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár