Hamingjan er í fjölskyldunni, tunglinu, vatnsheldum maskara og kaffi

Fyr­ir­gefn­ing, eft­ir­vænt­ing og þakk­læti eru góð verk­færi til að stuðla að ham­ingj­unni. Að ákveða að morgni sér­hvers dags að hann verði góður, leita sátta, sjá það góða í fari fólks og vera óhrædd við að teygja sig út til fólks. Þessar leiðir hefur Olga Björt Þórð­ar­dóttir, rit­stjóri og útgef­andi Hafn­firð­ings, farið til að auka ham­ingju sína.

Hamingjan er í fjölskyldunni, tunglinu, vatnsheldum maskara og kaffi
Ham­ingjan Að mati Olgu Bjartar Þórð­ar­dóttur er ham­ingjan víða, meðal ann­ars í því að geta tjáð sig óhindrað. „Að vera með fólki sem tekur manni eins og maður er skiptir miklu máli til að vera ham­ingju­söm. Öll sím­töl frá pabba eru ham­ingju­vekj­andi, hann er svo hvetj­andi og mín helsta fyr­ir­mynd,“ segir Olga Björt. Mynd: Heiða Helgadóttir

Olga Björt Þórð­ar­dóttir, rit­stjóri og útgef­andi Hafn­firð­ings, finnur ham­ingj­una víða. Í fjöl­skyldu sinni, fyrsta kaffi­bolla dags­ins, vatns­heldum mask­ara og tungl­inu. Hún segir að það að finna, rækta og virkja sem flesta hæfi­leika sína sé ein af leið­unum til auk­innar ham­ingju og til að stækka tengsla- og vina­netið hikar hún ekki við að hringja í ókunn­ugt fólk sem hana langar til að kynn­ast.

Hvað er svona óskap­lega gott við fyrsta kaffi­bolla dags­ins? „Kaffi er ein­fald­lega gott á bragðið. Þó að áhrifin af því komi ekki fram fyrr en eftir 20 mín­útur, þá er eitt­hvað við þetta augna­blik þegar ég á stund með sjálfri mér, búin að koma stelp­unum í skól­ann og er að und­ir­búa dag­inn. Mér finnst þetta svo góð til­finn­ing. Þarna er ég ham­ingju­söm.“ 

Olga tekur þá ákvörðun að morgni sér­hvers dags að hann verði góður. „Þannig verð ég mót­tæki­legri fyrir því sem dag­ur­inn hefur hugs­an­lega í för …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár